Fundargerðir

Fundargerðir auðkenndar með rauðu letri hafa ekki hlotið afgreiðslu bæjarráðs eða bæjarstjórnar.


Skoða meira



 
 
 




 



 



Auglýsingar

10.3.2010

Auglýst er eftir umsjón með tjaldstæði á Stokkseyri

Sjá nánar

8.3.2010

56. fundur bæjarstjórnar Árborgar, kjörtímabilið 2006-2010, haldinn miðvikudaginn 10. mars 2010 kl. 17:00 í Ráðhúsi Árborgar, Selfossi.

Sjá nánar

4.3.2010

Sumarvinna - okkur vantar samverkafólk í græna geirann í sumar!

Sjá nánar

1.3.2010

Styrkir til menningarstarfs í Sveitarfélaginu Árborg

Sjá nánar
Nánar

2.2.2010

Sigur á Þrótti í 1. deild í handbolta

Það var ljóst strax í upphafi í hvað stefndi. Selfoss tók strax öll völd á vellinum og voru þeir komnir með 6 marka forystu áður en hálfleikurinn var hálfnaður. Þrátt fyrir að liðið hafi misnotað talsvert af upplögðum marktækifærum var staðan í hálfleik 9-19 fyrir okkar menn.....

Í síðari hálfleik þá hélt liðiðáfram að spila af krafti og einbeitingu og smám saman minnkaði mótspyrna heimamanna og leikurinn endaði sem áður segir með 24 marka sigri Selfoss, 20-44.


Það var gaman að sjá liðið einbeitt í 60 mínútur og spila af sama krafti allan tímann. Aldrei var slegið af né gefið eftir. Það var hvergi veikan blett að finna á liðinu og ekkert hægt að setja útá nema þáeinna helst hvaðmörg hraðaupphlaup misfórusten a.m.k. 8-10 hraðaupphlaup enduðu með skoti í tréverkið eða framhjá.


Sebastiangat leyft sér að rúlla liðinu vel. Þannig spilaði Atli Kristinsson t.d. ekkert í fyrri hálfleik. Enginn leikmaður spilaði meira en 40 mín. og langflestir spiluðu 20-30 mín. Þá spiluðu Birkir Fannar Bragason og Andri Már Sveinssonsinn fyrsta leik með M.fl. á þessu keppnistímabili. Það voru allsfimm breytingar á leikmannahópnum frá síðasta leik. Einar Héðinsson, Matthías Halldórsson,Hörður Bjarnason, Baldur Þór Elíassonog Sebastian voru ekki í leikmannahópnum að þessu sinni og í þeirra stað komu Eyþór Lárusson, Birkir Fannar Bragason, Óskar Kúld Pétursson, Ársæll Ársælssonog Andri Már Sveinsson.


Markaskor og markvarsla:


Ragnar 12
Hörður (Sjóli) 7
Atli 7
Guðni 4
Árni Steinn 4
Mikalonis 3
Ársæll 3
Eyþór 1
Helgi 1
Ívar 1
Andri Már 1
Ástgeir varði 14 skot í fyrri hálfleik (61%)
Birkir varði 14 skot í seinni hálfleik (56%)


Næsti leikur er á heimavelli á móti UMFA næstkomandi föstudag, 5. febrúar,kl. 19:30.
Heimasíðan biður ALLA sem tök hafa á því að koma og styðja liðið til sigurs í toppslagnum.


Áfram Selfoss

af vef umfs.is


Til baka









 

Ráðhús Árborgar | Austurvegi 2 | 800 Selfoss | Sími 480 1900 | Fax 480 1901                                                                               Netfang: radhus@arborg.is