Fundargerðir auðkenndar með rauðu letri hafa ekki hlotið afgreiðslu bæjarráðs eða bæjarstjórnar.
8.3.2010
5.3.2010
26.2.2010
Skoða meira
8.3.2010
Sjá nánar4.3.2010
Sjá nánar1.3.2010
Sjá nánar1.3.2010
Sjá nánar4.2.2010
Mín Árborg – aukin þjónusta á vefnum frá og með 1.febrúar 2010|
|
|||
Til að fá aðgang að gáttinni er valin „nýskráning” og verður síðan lykilorð sent í heimabanka viðkomandi en einnig er hægt að nálgast lykilorðið í afgreiðslu Ráðhúss Árborgar.
Mín Árborg býður upp á:
- Hvatagreiðslur
- Umsókn um leikskóla og yfirsýn yfir afgreiðslu þeirra
- Tengil að fjölskylduvef Mentors
Í gegnum Mína Árborg hafa foreldrar grunnskólabarna í Árborg beinan aðgang að sinni síðu á fjölskylduvef Mentors.
Á fjölskylduvef Mentors getur þú:
- Fundið heimilisföng og símanúmer bekkjarfélaga barnanna
- Séð hvað börnin þín eiga að læra heima
- Séð yfirlit yfir ástundun og einkunnir barnanna þinna
- Lesið athugasemdir og tilkynningar frá kennara
Hvatagreiðslur vegna íþrótta- og/eða tómstundastarfs
Sveitarfélagið Árborg hefur frá 1. september 2008 niðurgreitt íþrótta- og/eða tómstundastarf fyrir börn á aldrinum 6 – 18 ára. Hvert barn á þeim aldri með lögheimili í Árborg á rétt á svonefndum hvatapeningum, 10.000 kr. niðurgreiðslu vegna þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.
Tilgangur hvatapeninganna er að jafna tækifæri barna og ungmenna til að iðka íþróttir og taka virkan þátt í tómstudastarfi. Það er von bæjarstjórnar Árborgar að hvatapeningarnir muni leiða til fjölgunar iðkenda og veiti fleiri börnum innan Árborgar tækifæri til að stunda það íþrótta- og/eða tómstundastarf sem þau hafa áhuga á.
Mín Árborg - fyrirkomulag á hvatagreiðslum í gegnum íbúagátt Árborgar
1. Foreldri/forráðamaður skráir barnið sitt í íþrótta- eða tómstundastarf og greiðir fyrir það eftir samkomulagi við viðkomandi félag.
2. Foreldri/forráðamaður skráir sig inn á Mína Árborg. Við nýskráningu fær viðkomandi sent lykilorð inn á heimabankann sinn. Þegar farið er inná Mína Árborg með lykilorðinu er smellt á hvatagreiðslur og þar valið það félag sem barnið stundar íþróttir og/eða tómstundir með. Einnig er valin upphæðin sem nota á til niðurgreiðslu. Hægt er að skipta hvatagreiðslunni milli tveggja félaga en hámarksupphæðin getur ekki farið yfir 10.000 kr. Síðan er umsóknin staðfest í lokin.
3. Starfsmenn sveitarfélagsins taka saman umsóknir um hvatagreiðslur og leita staðfestingar hjá viðkomandi félagi á því að greitt hafi verið fyrir eða samið um greiðslu vegna barnsins hjá félaginu á því ári sem sótt er um. Þegar staðfesting hefur borist frá félaginu er styrkurinn greiddur inn á þann reikning sem umsækjandi gaf upp í umsókninni.
Margar rannsóknir hafa sýnt fram á það að þátttaka í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi minnki líkur á því að börn leiðist inn á óæskilegar brautir, byrji að reykja, nota munn- eða neftóbak, drekka áfengi, eða sýni aðra frávikshegðun. Því er til mikils að vinna að hvetja börn til þátttöku í því fjölbreytta starfi sem stendur til boða í sveitarfélaginu, og um leið að nýta sér hvatapeningana.






