Fundargerðir auðkenndar með rauðu letri hafa ekki hlotið afgreiðslu bæjarráðs eða bæjarstjórnar.
8.3.2010
5.3.2010
26.2.2010
Skoða meira
8.3.2010
Sjá nánar4.3.2010
Sjá nánar1.3.2010
Sjá nánar1.3.2010
Sjá nánar8.2.2010
Umsóknir um hvatagreiðslur orðnar rafrænar í gegnum Mína Árborg![]() |
|||
|
|
|||
Til að fá aðgang að þjónustunni er valin „nýskráning” og er þá lykilorð sent í heimabanka viðkomandi en einnig er hægt að velja þann möguleika að ná í lykilorðið í afgreiðslu Ráðhúss Árborgar.
Hægt er að sækja um hvatagreiðslurnar frá 1. febrúar til 31. janúar ár hvert. Fyrir árið 2010 er því hægt að sækja um til 31. janúar 2011. Hvatagreiðsla fellur niður fyrir árið 2010 hafi ekki verið sótt um fyrir þann tíma.
Mín Árborg - fyrirkomulag á hvatagreiðslum í gegnum íbúagátt Árborgar
1. Foreldri/forráðamaður skráir barnið sitt í íþrótta- eða tómstundastarf og greiðir fyrir það eftir samkomulagi við viðkomandi félag.
2. Foreldri/forráðamaður skráir sig inn á Mína Árborg. Við nýskráningu fær viðkomandi sent lykilorð inn á heimabankann sinn. Þegar farið er inná Mína Árborg með lykilorðinu er smellt á hvatagreiðslur og þar valið það félag sem barnið stundar íþróttir og/eða tómstundir með. Einnig er valin upphæðin sem nota á til niðurgreiðslu. Hægt er að skipta hvatagreiðslunni milli tveggja félaga en hámarksupphæðin getur ekki farið yfir 10.000 kr. Síðan er umsóknin staðfest í lokin.
3. Starfsmenn sveitarfélagsins taka saman umsóknir um hvatagreiðslur og leita staðfestingar hjá viðkomandi félagi á því að greitt hafi verið fyrir eða samið um greiðslu vegna barnsins hjá félaginu á því ári sem sótt er um. Þegar staðfesting hefur borist frá félaginu er styrkurinn greiddur inn á þann reikning sem umsækjandi gaf upp í umsókninni.
Athugið að umsóknarhæft íþrótta- og/eða tómstundastarf þarf að vera námskeið eða æfingar sem standa í 10 vikur eða lengur.
Sveitarfélagið Árborg hefur frá 1. september 2008 niðurgreitt íþrótta- og/eða tómstundastarf fyrir börn á aldrinum 6 – 18 ára. Hvert barn á þeim aldri með lögheimili í Árborg á rétt á svonefndum hvatapeningum, 10.000 kr. niðurgreiðslu vegna þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.
Tilgangur hvatapeninganna er að jafna tækifæri barna og ungmenna til að iðka íþróttir og taka virkan þátt í tómstudastarfi. Það er von bæjarstjórnar Árborgar að hvatapeningarnir muni leiða til fjölgunar iðkenda og veiti fleiri börnum innan Árborgar tækifæri til að stunda það íþrótta- og/eða tómstundastarf sem þau hafa áhuga á.
Margar rannsóknir hafa sýnt fram á það að þátttaka í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi minnki líkur á því að börn leiðist inn á óæskilegar brautir, byrji að reykja, nota munn- eða neftóbak, drekka áfengi, eða sýni aðra frávikshegðun. Því er til mikils að vinna að hvetja börn til þátttöku í því fjölbreytta starfi sem stendur til boða í sveitarfélaginu, og um leið að nýta sér hvatapeningana.







