Nánar

26.2.2010

Árlegt Þorrablót í Grænumörk

Árlegt þorrablót var haldið fyrir íbúa og starfsmenn Grænumarkar föstudaginn 19. febrúar síðastliðinn. Að þessu sinni tók Dagdvöl eldri borgara einnig þátt en sér þorrablót hefur verið verið haldið undanfarin ár fyrir þann hóp er þar kemur. Mæting að þessu sinni var afburða góð eða alls 60 manns og fylltu salinn þar sem blótið fór fram.

 Matur var fenginn frá Mat og músik á Selfossi en skemmtiatriði voru heimagerð. Guðmunda Jónsdóttir og Guðrún Valdimarsdóttir fóru með kvæði, sagðir voru brandrar og sungið undir harmonikkuspili Stefáns Ármanns Þórðarsonar. Góður rómur var gerður að skemmtuninni og fóru allir glaðir heim.


Sigrún Bogadóttir fótaaðgerðafræðingur var sérstaklega boðin þar eð hún hefur nú látið af störfum í Grænumörk og var hún kvödd og þakkað fyrir góða þjónustu í gegn um árin.


Til baka