1.3.2010
Dagdvöl eldri borgara gefið nafnið Árblik![]() |
|||
|
|||
|
|
|||
Alls bárust 32 tillögur og allar með mjög frambærilegum nöfnum. Nöfnin voru síðan öll listuð upp og kusu þjónustuþegar og starfsmenn um það nafn sem þeim leist best á.
Nafnið Árblik hlaut að lokum flest atkvæði og höfðu tvær konur sent tillögu að því nafni. Þær eru Margrét Valdimarsdóttir, en hún kemur reglulega í Árblik, og Vaka Kristjánsdóttir, sem er yfirmaður félagslegrar heimaþjónustu Árborgar og starfar í Grænumörk.
Árblik þýðir: fyrsta dagskíman sem sést á himninum þegar dagar og þótti vel við hæfi að vísa til rísandi birtu í nafni fyrir dagdvöl eldri borgara.










Sjá nánar