1.3.2010
Sunnulækjarskóli og Vallaskóli kepptu í Skólahreysi 2010![]() |
|||
|
|
|||
Keppendur úr Árborg stóðu sig mjög vel og vann Andrea Ýr Guðmundsdóttir úr Sunnulækjarskóla m.a. hreystigreipina þegar hún hékk í rúmar þrjár mínútur. Sunnulækjarskóli endaði heildarstigakeppnina í 4. sæti en Vallaskóli varð í 9. sæti. Keppendur fara með mikilvæga reynslu heim sem nýtist án efa fyrir Skólahreysti 2011.
Grunnskólarnir og félagsmiðstöðin Zelsíuz standa saman að þátttöku skólanna þetta árið en skólarnir sáu um að undirbúning keppnisliðsins en Zelsíuz um að skipuleggja ferð stuðningsliðsins. Ferðin gekk vel í alla staði og voru ungmennin skólunum sínum til sóma á áhorfendabekkjum Austurbergs.
Hægt er að nálgast meiri upplýsingar um keppnina á heimasíðu Skólahreysti, http://www.skolahreysti.is/ eða á heimasíðu mbl.is, http://www.mbl.is/mm/sport/skolahreysti/
Keppendur grunnskóla Árborgar 2010
Vallaskóli
Sara Árnadóttir keppti í hreystigreip og armbeygjum
Gísli Örn Þórisson keppti í dýfum og upphýfingum
Margrét Lúðvígsdóttir og Jóhannes Snær Eiríksson kepptu í hraðaþrautinni
Sunnulækjarskóli
Andrea Ýr Guðmundsdóttir keppti í hreystigreip og armbeygjum
Óttar Gunnlaugsson keppti í dýfum og upphýfingum
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Magnús Bjarki Þórlindsson kepptu í hraðaþrautinni










Sjá nánar