3.3.2010
Z-ráð félagsmiðstöðvarinnar Zelsíuzar gefur peninga til góðgerðarmála![]() |
||||||
|
||||||
Þrjú góðferðafélög fengu framlag en samtals söfnuðu unglingarnir 197.000 kr. sem þau ákváðu að skipta eftirfarandi: ABC Barnahjálp fengu 100.000 kr. og Björgunarfélag Árborgar og Rauði kross Íslands – Árnesingadeild fengu hvor um sig 48.500 kr.
Afhending fjárframlaganna fór fram í félagsmiðstöðinni Zelsíus og mættu fjöldi unglinga auk fulltrúa góðgerðafélaganna, bæjarstjóra og annarra gesta. Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri byrjaði á því að ávarpa gesti og bauð alla hjartanlega velkomna. Eftir afhendingu framlaganna kynnti síðan Guðjón Ingi Guðmundsson, fulltrúi ABC barnahjálpar, starf félagsins sem nær út um allan heim.
Unglingarnir fengu mikið hrós fyrir framtakið enda mjög jákvætt og sýnir að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi.










Sjá nánar


