Gréta Berg sýnir teikningar og portrettmyndir unnar með kolum, pastel og krít í Listagjánni í bókasafninu á Selfossi í mars. Gréta er fædd á Akureyri en býr nú í Hveragerði. Hún hefur teiknað frá barnsaldri og sýnt á samsýningum og einkasýningum víða um land, og einnig teiknað myndir af fólki á staðnum..... Hún hefur lokið öllum grunn í teikningu, málun og sögu á Listabraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti, stundað nám í Handíða – og myndlistarskólanum í Reykjavík, Myndlistarskólanum í Reykjavík og Akureyri og sótt nám í listmeðferð. Hún er félagi í SÍM sjá nánar á http://www.sim.is/. Sýningin er opin á opnunartíma bókasafnsins virka daga frá kl. 10-19 og laugardaga kl. 11-14.