Nánar

5.3.2010

ÍSLENSK MYNDLIST – hundrað ár í hnotskurn

Þjóðerni – rómantík – raunsæi – átök – kreppa – expressjónismi – módernismi – formbylting – súmmarar – hugmyndalist –– póstmódernismi – svo fátt eitt sé talið
Sunnudaginn 7. mars kl. 15.00 mun Rakel Pétursdóttir, safnafræðingur og deildarstjóri fræðsludeildar Listasafns Íslands.....

verða með leiðsögn um sýninguna og fjalla m.a. um birtingarmyndir þeirra hugtaka sem eru leiðarstef sýningarinnar.


Sýningin er samstarfsverkefni Listasafns Íslands og Listasafns Árnesinga í Hveragerði. Leitast er við að gefa innsýn í þróun íslenskrar myndlistar á 20. öld og samspil hennar við íslenskt þjóðfélag. Verkin standa sem tákn um ákveðið tímabil og viðhorf til myndlistar því val verka á sýningunni byggist á þeirri hugmynd að þau endurspegli ákveðinn tíðaranda og hugmyndafræði en ekki einstaka listamenn eða þróun þeirra. Þó var það haft í huga að velja listamenn og viðfangsefni af Suðurlandi þegar hægt var án þess að hverfa frá grunnhugmyndinni.


Verkin koma flest úr safneign Listasafns Íslands, en einnig eru þar verk í eigu Listasafns Árnesinga, einkum úr gjöf Bjarnveigar Bjarnadóttur og sona. Sýningarstjórar eru Dagný Heiðdal, deildarstjóri listaverkadeildar og Rakel Pétursdóttir, deildarstjóri fræðsludeildar Listasafns Íslands og Inga Jónsdóttir safnstjóri Listasafns Árnesinga.


Sýningin mun standa til 2. maí og safnið er opið fimmtudaga – sunnudaga kl. 12-18. Aðgangur er ókeypis.


Til baka