Nánar

9.3.2010

Umf. Selfoss sér áfram um rekstur íþróttasvæðisins við Engjaveg

Föstudaginn 5.mars sl. var undirritaður samningur milli Umf. Selfoss og Sveitarfélagsins Árborgar þess efnis að Umf. Selfoss sér um rekstur íþróttasvæðisins við Engjaveg árið 2010. Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar og Axel Þór Gissurarson, formaður Umf. Selfoss undirrituðu samningana....

Samningurinn er sambærilegur fyrri samningi en Umf. Selfoss hefur séð um rekstur vallarsvæðisins undanfarin ár. Nýjungar í þessum samningi eru að Umf. Selfoss sér alfarið um og ber ábyrgð á upphitun og lýsingu gervigrasvallarins, aukið samstarf verðu milli Umhverfisdeildar Árborgar, Golfklúbbs Selfoss og Umf. Selfoss en gefin hefur verið út umhirðuáætlun fyrir íþróttasvæðið sem tekur á öllum þáttum hvað varðar umhirðu grassvæða og gróðurs á svæðinu.


Einungis er samið núna til eins árs en vegna nýframkvæmda, aukinna notkunar og aðkomu Golfklúbbs Selfoss og Umhverfisdeildar Árborgar að vallarsvæðinu er umfang þess að breytast og því verður samningurinn endurskoðaður aftur haustið 2010.


Til baka