6.8.2010
Fjölbreytt dagskrá á Sumri á Selfossi![]() |
|||
|
|
|||
Eins og fyrri ár hefst hátíðin á því að bæjarbúum er boðið til morgunverðar og að þessu sinni verður í íþróttahúsinu í Vallaskóla. Fyrirtæki á Selfossi sameina krafta sínu og leggja til það sem þau geta svo að bæjarbúar geti borðað saman morgunmat endurgjaldslaust.
Hápunktur hátíðarinnar er án efa Sléttusöngurinn sem verður á útivistarsvæðinu á Selfossi, við Sigtún, og er nú haldinn í 14 sinn. Í þetta sinn Selfyssingurinn Magnús Kjartan stjórna fjöldasöngnum og mun njóta liðsinnis frá frægustu sonum Selfoss, Skítamóralsstrákunum, áður en flugeldasýningin hefst. Eftir þetta Sléttusönginn er svo dansleikur í Hvíta húsinu með Skítamóral.
Sem fyrr segir verður bænum skipt upp og hvert hverfi fær sinn lit. Skiptinguna má sjá á myndinni hér til hliðar. Hvert hverfi fær sinn fyrirliða sem velur lið til að taka þátt í Hverfaleikunum þar sem keppt verður í fjölda óvenjulegra greina. Þarna er heiðurinn að veði, því hver vill ekki búa í besta hverfi á Selfossi?
Hátíðin er stútfull af allskyns viðburðum, t.a.m. sprell tæki, hópgöngur, útimessa og Sumarhvellur Kanans. Einnig verða fjölmargar sýningar um allan bæ, allt frá bílasýningum til leiksýninga. Keppt verður um hver er Selfosströllið og Olís-mótið í knattspyrnu fer fram einnig þessa helgi.
Hægt er að fylgjast með undirbúningi hátíðarinnar og fá nánari upplýsingar á facebook síðu Sumars á Selfossi.
SUMAR Á SELFOSSI - DAGSKRÁ
Hverfaskipting v. Sumar á Selfossi










Sjá nánar