Auglýsingar á almannafæri

Forsíða » Fréttir » Auglýsingar á almannafæri

Sveitarfélagið Árborg vekur athygli á því að samkvæmt reglugerð um lögreglusamþykktir nr. 1127/2007 gilda eftirfarandi reglur um auglýsingar á almannafæri: Á mannvirki og hluti má ekki mála, teikna eða festa auglýsingar nema með leyfi eiganda eða umráðamanns. Óheimilt er að reisa auglýsingaskilti á almannafæri nema með leyfi sveitarstjórnar. Byggingafulltrúi Árborgar mun láta fjarlægja, á kostnað eigenda, auglýsingar sem festar eru á mannvikri og hluti í eigu sveitarfélagsins eða stofnana þess, svo og auglýsingaskilti sem reist eru á almannafæri án samþykkis sveitarstjórnar. Athygli er vakin á því að unnt er að vísa slíkum málum til lögreglu og geta brot gegn reglunum varðað refsingu. Sveitarfélagið Árborg