10.3.2010
Auglýst er eftir umsjón með tjaldstæði á Stokkseyri
Sveitarfélagið Árborg auglýsir eftir áhugasömum aðila til að sjá um rekstur tjaldstæðis á Stokkseyri sumarið 2010. Nánari upplýsingar og skilmála má finna á heimasíðu Árborgar, http://www.arborg.is/ undir liðnum auglýsingar. Umsóknarfrestur er til 25. mars n.k. og skal umsóknum skilað í Ráðhús Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi. Sveitarfélagið Árborg










Sjá nánar