14.9.2012 | Dagur íslenskrar náttúru í Hellisskógi

Forsíða » Fréttir » Dagur íslenskrar náttúru í Hellisskógi
5015475037_022c2b0796

Í tilefni af Degi íslenskrar náttúru er boðið upp á gönguferð um Hellisskóg á Selfossi sunnudaginn 16. september kl. 13.00-15.00,  undir leiðsögn Snorra Sigurfinnssonar félaga í Skógræktarfélagi Selfoss.  Þetta er í annað sinn sem dagurinn er haldinn hátíðlegur á Íslandi og er honum ætlað að vekja athygli á gildi náttúrunnar og þeim náttúruperlum sem er að finna um allt land. 

Þátttakendur geta fengið að gróðursetja tré í tilefni dagsins og eru áhöld til þess á staðnum.  Meðal annars verður fyrirhugað brúarstæði Ölfusárbrúar og lega þjóðvegar 1 í gegnum skóginn skoðuð.  Mæting er á bílaplani fyrir innan hlið. 

Skógræktarfélag Selfoss sem fagnar 60 ára afmæli á árinu mun síðan bjóða upp á afmæliskaffi að göngu lokinni í Hellinum.

Menningarnefnd Sveitafélagsins Árborgar.