16.4.2009
136. fundur Bæjarráðs
136. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2006-2010 haldinn fimmtudaginn 16. apríl 2009 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 08:10 Mætt: Ásta Stefánsdóttir, bæjarritari Fundargerðir til kynningar: 1. 0903049 - Fundargerðir fulltrúaráðs BÁ 2009 4. 0904074 - Fundarboð vegna aðalfundar Veiðifélags Árnesinga fyrir árið 2008 5. 0904093 - Stofnun Hagsmunasamtaka íbúa Grænumarkar 1, 3 og 5 6. 0903235 - Beiðni Sýslumannsins á Selfossi um umsögn um umsókn um tækifærisveitingaleyfi - Fornbílaklúbbur Íslands 7. 0904078 - Beiðni Sýslumannsins á Selfossi um umsögn um umsókn um endurnýjun rekstrarleyfis - Hrói höttur 8. 0812079 - Beiðni Samtaka verslunar- og þjónustu um afnot af léninu www.selfoss.is, minnisblað bæjarritara 9. 0904065 - Tillaga frá bæjarstjóra um kaup og uppsetning á hugbúnaði til að takmarka notkun af Internetinu. 10. 0903234 - Beiðni um styrk vegna ráðstefnu um Pál Lýðsson og lífsstarf hans 11. 0508068 - Fyrirspurn frá fulltrúa D-lista um heildarkostnað sveitarfélagsins vegna skipulagsmála í miðbæ Selfoss 12. 0903155 - Fundir bæjarráðs 2009 - Sumardagurinn fyrsti Erindi til kynningar 13. 0903236 - Hvatning frá Saman hópnum - börn og unglingar Jón Hjartarson
Jón Hjartarson, formaður, V-lista
Þorvaldur Guðmundsson, bæjarfulltrúi, B-lista
Elfa Dögg Þórðardóttir, varamaður D-lista
Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri
73.fundur haldinn 23.mars
74.fundur haldinn 25.mars
Lagt fram.
2. 0903072 - Fundargerðir skólanefndar Tónlistarskóla Árnesinga 2009
149.fundur haldinn 11.mars
150.fundur haldinn 20.mars
Lagt fram.
3. 0903111 - Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurlands 2009
Aðalfundur fyrir árið 2008 haldinn 31.mars
Lagt fram.
Almenn erindi
Bæjarráð samþykkir að fela Grétari Zóphoníassyni að sækja fundinn f.h. Sveitarfélagsins Árborgar.
Stofnfundur haldinn 3.apríl
Yfirlýsing frá bæjaryfirvöldum í Sveitarfélaginu Árborg og félaga í þeirra eigu:
Í tilefni stofnunar samtaka íbúa í Grænumörk 1, 3 og 5 skuldbinda bæjaryfirvöld sig til þess að kynna forsvarsmönnum samtakanna formlega ef fyrirhugað er að gera breytingar á starfsemi á vegum sveitarfélagsins sem rekin er í Grænumörkinni og gefa þeim kost á að koma að sjónarmiðum sínum og áherslum áður en ákvörðun er tekin um breytingar á starfsemi sveitarfélagsins í Grænumörkinni sem og í málum sem snerta hagsmuni íbúanna almennt.
Sveitarfélagið Árborg skuldbindur sig einnig til að veita samtökunum aðstoð við að starfrækja hin nýstofnuðu samtök, t.d. með því að sjá um boðun funda að beiðni forsvarsmanna, tryggja samtökunum húsnæði til fundarhalda, sjá um og kosta ljósritun, mæta á fundi samtakanna, sé þess óskað o.s.frv.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um erindið.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um erindið, bæði hvað varðar afgreiðslutíma og staðsetningu staðar.
Minnisblað bæjarritara var lagt fram. Bæjarráð felur bæjarritara og verkefnisstjóra íþrótta-, forvarna- og menningarmála að ræða við forsvarsmenn Samtaka verslunar- og þjónustu.
Lögð var fram svohljóðandi tillaga frá bæjarstjóra um kaup og uppsetningu hugbúnaðar til að takmarka notkun af Internetinu.
Lagt er til að keyptur verði hugbúnaður til að takmarka notkun af Internetinu í tölvum sveitarfélagsins. Kerfisstjóra sveitarfélagsins verði falið að vinna að framkvæmdinni og útfærslu í samráði við bæjarstjóra.
Greinargerð.
Tilgangurinn er m.a. sá að ná meiri árangri í að sía frá óæskilegar síður s.s. klámsíður og auka þannig öryggi barna og ungmenna sem nota tölvur sveitarfélagsins. Einnig er tilgangurinn að draga úr umferð á netinu vegna m.a. "Face-book" og "msn" og verður aðgangur að þeim síðum lokaður nema í undantekningum þar sem um er að ræða starfstengda notkun. Gert verði ráð fyrir leyfi á hugbúnaðinum til 3ja ára. Áætlaður kostnaður við kaup og uppsetningu er um 3 milljónir króna.
6. apríl 2009
Ragnheiður Hergeirsdóttir
bæjarstjóri
Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt með tveimur atkvæðum gegn atkvæði fulltrúa D-lista.
Bæjarráð fagnar framtaki Fræðslunets Suðurlands og Fjölbrautaskóla Suðurlands og samþykkir erindið, styrk að fjárhæð 60.000 kr.
Lögð var fram svohljóðandi fyrirspurn:
Hver er heildarkostnaður sveitarfélagsins vegna miðbæjarmála þar með talin kaup á Pakkhúsinu og rekstri þess, kostnað við samkeppni, skipulagsmál, ferðakostnað til útlanda, fundakostnað, auglýsingar, bæklingagerð og aðkeypta þjónustu svo sem lögfræðiráðgjöf. Kostnaðurinn óskast sundurliðaður á einstaka liði á árinum 2006-2009.
Fjármála- og stjórnsýslusviði er falið að afla umbeðinna upplýsinga.
Bæjarráð samþykkir að fundur bæjarráðs í næstu viku verði föstudaginn 24. apríl, kl. 08:10 þar sem fastan fundartíma ber upp á Sumardaginn fyrsta.
Lagt fram.
14. 0904024 - Samráðsdagur Skipulagsstofnunar og sveitarfélaga
Lagt fram.
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 8:35
Þorvaldur Guðmundsson
Elfa Dögg Þórðardóttir
Ragnheiður Hergeirsdóttir
Ásta Stefánsdóttir










Sjá nánar