Nánar

19.6.2009

Sumarsprell Pakkhússins laugardaginn 20.júní

Sumarsprell Ungmennahússins – Pakkhúsið verður haldið laugardaginn 20.maí í Pakkhúsinu og í garðinum fyrir aftan. Farið verður m.a. í vítaspyrnukeppni og haldið verður grasblakmót en vegleg verðlaun verða í boðið fyrir þessa viðburði. Kassagítarstemning verður á svæðinu.


Boðið verður upp á grillaðar SS pylsur og gos frá Vífilfelli.


Sumarsprellið kostar ekki neitt og geta lið skráð sig í grasblakmótið með því að senda póst á pakkhusid@arborg.is.


Til baka