26.10.2009
Sveitarfélagið Árborg auglýsir stöðu forstöðumanns dagdvala
Sveitarfélagið Árborg auglýsir eftir forstöðumanni dagdvala á Selfossi. Sveitarfélagið rekur tvær dagdvalir, annars vegar almenna dagdvöl í Grænumörk 5 og hins vegar dagdvöl fyrir einstaklinga með minnisskerðingar í Vallholti 38. Í starfinu felst: Menntun og hæfniskröfur: Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðeigandi stéttarfélags og Launanefndar sveitarfélaga. Starfið hæfir jafnt körlum sem konum. Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist skriflega til Guðlaugar Jónu Hilmarsdóttur, verkefnisstjóra félagslegra úrræða, Fjölskyldumiðstöð Árborgar, Austurvegi 2, 800 Selfossi, eigi síðar en 9. nóvember nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðlaug Jóna Hilmarsdóttir, verkefnisstjóri félagslegra úrræða, gudlaugjona@arborg.is eða í síma 480-1900 á símatíma mánu- fimmtudaga frá kl. 13:30 – 14:30. Fjölskyldumiðstöð Árborgar veitir íbúum sveitarfélagsins þjónustu á sviði félags-, fræðslu-, íþrótta-, forvarna- og menningarmála með það að markmiði að efla velferðarþjónustu sveitarfélagsins og skapa fjölskylduvænt samfélag. Umsækjendum er bent á að kynna sér heimasíðu sveitarfélagsins, http://www.arborg.is/, þar sem er að finna margvíslegar upplýsingar um þjónustu og stefnu sveitarfélagins í málaflokkum sem tengjast fjölskyldunni með einum eða öðrum hætti.










Sjá nánar