Nánar

9.12.2009

Útboð - Skipulags- og byggingarfulltrúi Árborgar óskar eftir tilboðum

Skipulags- og byggingarfulltrúi Árborgar óskar eftir tilboðum í útsetningar og innmælingar á svæðum eða lóðum og útsetningum á nýbyggingum innan sveitarfélagsins fyrir árið 2010.


Ekki er um fyrirfram ákveðið magn að ræða heldur fer það eftir framvindu byggingarframkvæmda í sveitarfélaginu.


Útboðsgögn verða afhent í Þjónustuveri Árborgar, Austurvegi 2, 800 Selfossi frá og með fimmtudeginum 10.desember 2009. Tilboðum skal skilað fyrir kl.13:30 mánudaginn 28 desember n.k.


Einnig er hægt að fá gögnin send til sín í tölvupósti með því að hafa samband við þjónustuver Árborgar í síma 480-1900 eða á tölvupóstfangið asdis@arborg.is


Skipulags- og byggingarfulltrúi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum.


Skipulags og byggingarfulltrúi Árborgar


Til baka