Nánar

22.12.2009

Uppskeruhátíð ÍTÁ 2009

Hin árlega uppskeruhátíð íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar verður haldin í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi þriðjudaginn


29. desember kl. 20:00.


Þar verða afhentir styrkir úr Afreks-og styrktarsjóði Árborgar og íþróttafélaganna, þ.e. Umf. Selfoss, íþf. Suðra og Íþf. FSu. Hvatningaverðlaun veitt, afhentir styrkir fyrir afburðaárangur og tilkynnt kjör íþróttakonu og íþróttakarls Árborgar 2009.


Skemmtiatriði og kaffiveitingar.


Hátíðin er öllum opin og allir hjartanlega velkomnir


Gleðileg jól.


Íþrótta- og tómstundanefnd Árborgar


Til baka