Nánar

25.1.2010

Sveitarfélagið Árborg auglýsir starf hjá Fjölskyldumiðstöð Árborgar

Sveitarfélagið Árborg auglýsir eftir sérfræðingi á sviði félagslegrar ráðgjafar.


Verkefni á sviði félagslegrar ráðgjafar eru m.a.: Barnaverndarmál, fjárhagsaðstoð, félagslegt leiguhúsnæði og félagsleg ráðgjöf í einstaklings-og fjölskyldumálum.



Menntun og hæfniskröfur


· Starfsréttindi í félagsráðgjöf eða háskólapróf á sviði félagsvísinda


· Reynsla á sviði barnaverndar og/eða félagsþjónustu æskileg


· Lipurð í mannlegum samskiptum


· Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð


· Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu


Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félagsráðgjafafélags Íslands og Launanefndar sveitarfélaga.



Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist skriflega verkefnisstjóra félagslegrar ráðgjafar, Anný Ingimarsdóttur, Fjölskyldumiðstöð Árborgar, Austurvegi 2, 800 Selfossi, eigi síðar en 8. febrúar 2010.


Nánari upplýsingar um starfið veitir Anný Ingimarsdóttir, verkefnisstjóri félagslegrar ráðgjafar, anny@arborg.is eða í síma 480-1900.



Til baka