Nánar

8.3.2010

Síðasti dagur til að sækja um stöðu forstöðumanns Bókasafns Árborgar


Forstöðumaður Bókasafns Árborgar Selfossi, Stokkseyri, Eyrarbakka


Fjölskyldumiðstöð Sveitarfélagsins Árborgar auglýsir stöðu forstöðumanns Bókasafns Árborgar lausa til umsóknar. Bókasafn Árborgar er staðsett á Selfossi og safnaútibú eru á Stokkseyri og Eyrarbakka. Á safninu á Selfossi er upplýsingamiðstöð yfir sumartímann.


Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:



  • Stjórn og ábyrgð á daglegum rekstri, starfi og fjármálum safnsins
  • Stjórn og ábyrgð á starfsmannamálum safnsins
  • Vinna við gerð fjárhagsáætlunar í samvinnu við næsta yfirmann
  • Þátttaka í stefnumótun og samvinna við stofnanir á sviðinu

Menntunar- og hæfniskröfur:



  • Menntun á sviði bókasafns- og upplýsingafræði eða sambærilegt nám
  • Reynsla af stjórnun og rekstri æskileg
  • Þekkingu á tölvum og upplýsingaveitum tengdum bókasöfnum æskileg
  • Sjálfstæði í starfi, frumkvæði og skipulagshæfni
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund

Laun eru samkvæmt samningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.


Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist til Andrésar Sigurvinssonar, verkefnisstjóra, Fjölskyldumiðstöð Árborgar, Austurvegi 2, 800 Selfossi, merkt forstöðumaður Bókasafns Árborgar, eigi síðar en 8. mars nk eða með tölvupósti andres@arborg.is


Karlar eru hvattir til að sækja um starfið jafnt sem konur.


Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét I. Ásgeirsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Árborgar, netfang maras@arborg.is eða í síma 480 1980 og/eða Andrés Sigurvinsson verkefnisstjóri íþrótta, forvarna- og menningarmála, netfang andres@arborg.is eða í síma 480-1900.


Fjölskyldumiðstöð Árborgar veitir íbúum sveitarfélagsins þjónustu á sviði félags-, fræðslu-, íþrótta-, forvarna- og menningarmála með það að markmiði að efla velferðarþjónustu sveitarfélagsins og skapa fjölskylduvænt samfélag. Umsækjendum er bent á að kynna sér heimasíðu sveitarfélagsins, http://www.arborg.is/, þar sem er að finna margvíslegar upplýsingar um þjónustu og stefnu sveitarfélagins í málaflokkum sem tengjast fjölskyldunni með einum eða öðrum hætti. Á heimasíðunni einnig að finna upplýsingar um fjölbreytta starfsemi Bókasafns Árborgar, s.s., barnastarf og bókasöfnin á Eyrarbakka og Stokkseyri.


Til baka