Fundargerðir

Fundargerðir auðkenndar með rauðu letri hafa ekki hlotið afgreiðslu bæjarráðs eða bæjarstjórnar.


Skoða meira



 
 
 




 



 



Auglýsingar

8.3.2010

56. fundur bæjarstjórnar Árborgar, kjörtímabilið 2006-2010, haldinn miðvikudaginn 10. mars 2010 kl. 17:00 í Ráðhúsi Árborgar, Selfossi.

Sjá nánar

4.3.2010

Sumarvinna - okkur vantar samverkafólk í græna geirann í sumar!

Sjá nánar

1.3.2010

Styrkir til menningarstarfs í Sveitarfélaginu Árborg

Sjá nánar

1.3.2010

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2009/2010 sbr.

Sjá nánar
Nánar

17.12.2009

165. fundur bæjarráðs

165. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2006-2010 haldinn fimmtudaginn 17. desember 2009 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 08:10

Mætt:

Þorvaldur Guðmundsson, formaður, B-lista,
Gylfi Þorkelsson, bæjarfulltrúi, S-lista,
Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi, D-lista,
Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri,
Ásta Stefánsdóttir, bæjarritari,


Fulltrúar B- og D-lista bjóða Gylfa Þorkelsson sérstaklega velkominn sem nýjan fulltrúa í bæjarráð. Gylfi þakkaði fyrr móttökurnar. Formaður leitaði afbrigða til að taka á dagskrá undirskriftalista starfsmanna BES, erindi Sorpstöðvar Suðurlands, samningaviðræður við Flóahrepp um útvegun vatns og kosningu varaformanns bæjarráðs. Var það samþykkt samhljóða.


Dagskrá:

1. 0901097 - Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar
14.fundur haldinn 10.desember


-liður 39, 0911272, tillaga að nafngiftum hringtorga í sveitarfélaginu, bæjarráð samþykkir erindið og felur nefndinni að útfæra það.


-liður 40, 0911208, erindi vegna gangbrautar við Tryggvagötu, bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar um að fela framkvæmda- og veitusviði að finna hagstæða lausn á málinu.


-liður 42, 0911207, skilti við Fossnes 3-7, bæjarráð hafnar því að skilti verði staðsett á landi sveitarfélagsins, utan lóðar viðkomandi fyrirtækis.


Fundargerðin staðfest.


2. 0901136 - Fundargerðir stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
181. fundur haldinn 11.nóvember182. fundur haldinn 20.nóvember183. fundur haldinn 27.nóvember

Lagt fram.


3. 0905115 - Kosning varaformanns í bæjarráð


Lagt var til að Gylfi Þorkelsson, S-lista, verði varaformaður bæjarráðs.


Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.

4. 0902082 - Málefni leikskóla sbr. afgreiðslu bæjarstjórnar 9.des s.l.


Eyþór Arnalds, D-lista, lagði fram svohljóðandi tillögu:


Fallið verði frá áformum um þær uppsagnir á leikskólum sem nú hafa þegar valdið biðlistum. Lagt er til að samið verði við bæjarstjóra að hann falli frá uppsagnarfresti þeim sem tilgreindur er í 12. gr. starfssamnings. Bæjarstjóri hefur lýst því yfir að hann gefi ekki kost á sér á næsta kjörtímabili og því eðlilegt að starfslok taki mið af slíkri yfirlýsingu. Sparnaður fyrir sveitarfélagið nemur rúmlega 6 milljónum við þessa breytingu. Þá má telja líklegt tekjutap sveitarfélagsins vegna biðlistans um 4 milljónir króna vegna lækkunar á útsvarstekjum. Þá er lagt til að minnkað verði starfshlutfall millistjórnenda til hagræðingar sem nemi því sem upp á vantar. Líklegt má telja að hér sé um 50% starfshlutfall að ræða en á móti kemur að 5 og hálft starf á leikskólunum endurheimtist í staðinn.


Greinargerð:


Fram kemur í greinargerð meirihluta V, S og B lista að börn eigi að vera í forgangi við gerð fjárhagsáætlunarinnar. Þrátt fyrir þessi orð er ljóst að biðlisti í leikskóla sveitarfélagsins hefur vaxið hratt. Til að koma til móts við óskir meirihlutans um beinar tillögur til að fjármagna styttingu biðlistans er lögð hér fram rökstudd tillaga sem bendir á útgjöld og tekjutap vegna þessa. Áætlað er að það kosti 15-20 milljónir að vinna upp þann biðlista sem nú hefur myndast hjá leikskólum sveitarfélagsins. Líklegt má telja að einhverjir foreldrar geti ekki stundað vinnu af þessum sökum þar sem þeir þurfa að sinna ungum börnum sínum heima við. Ef gert er ráð fyrir að 1/3 þeirra foreldra sem ekki fá leikskólapláss þurfi að taka sér frí eða hverfa frá vinnu í 6 mánuði að meðaltali mun slíkt leiða til 4 milljón króna tekjutaps fyrir bæjarsjóð ef miðað er við meðaltekjur fólks á svæðinu.


Forsendur:


útsvarsprósenta 13.28% útsvarsstofn 275 per mánuð 36.52 fjöldi fólks 18 fjöldi mánaða 6 Útsvarstap' 3,944 Laun bæjarstjóra 7Útsvarstekjur 4 Annar sparnaður 4 Samtals 15


Tillagan var borin undir atkvæði og felld með tveimur atkvæðum gegn atkvæði bæjarfulltrúa D-lista.


Bæjarfulltrúar B- og S-lista gera grein fyrir atkvæði sínu:


Að birta í fjölmiðlum tillögu sem koma á síðan til afgreiðslu í bæjarráði eins og bæjarfulltrúi D lista hefur nú gert eru stjórnsýsluvinnubrögð sem fulltrúum B, S og V lista hugnast ekki.  Hér er um tillögu að ræða þar sem lögð er til skerðing á kjörum fjölda starfsmanna, þar á meðal lykilstjórnenda sveitarfélagsins sem frétta af þessum hugmyndum í fjölmiðlum.  Þegar hefur verið samið við bæjarstjóra bæði árin 2009 og 2010 um meiri launalækkun en nokkurn annan starfsmann, eða hóp starfsmanna, hjá sveitarfélaginu. Sú ákvörðun Ragnheiðar Hergeirsdóttur að gefa ekki kost á sér á framboðslista vegna bæjarstjórnarkosninganna vorið 2010 kemur starfi hennar og starfskjörum sem bæjarstjóri ekki við. Þá hefur þegar verið gengið svo langt í samningum við millistjórnendur hjá sveitarfélaginu um skerðingu starfskjara á sama tímabili að ekki verður lengra haldið eftir þeirri braut. Tillaga sú sem hér liggur fyrir er því bæði óraunhæf og vanvirðing við það starfsfólk sem lengst hefur viljað ganga í skerðingu á gildum starfskjörum sínum til að spara útgjöld fyrir sveitarfélagið.


Lögð var fram svohljóðandi tillaga meirihlutans:


Bæjarráð Árborgar telur að ekki sé hægt að taka börn inn í þau leikskólapláss sem ekki eru í notkun við núverandi aðstæður.  Bæjarráð samþykkir að leita lausna til að hægt verði að taka fleiri börn inn á leikskóla Árborgar.  Þó að stöðugildum við leikskólana verði fækkað um 5,2 stöðugildi um áramót vegna uppsagna er þjónusta skólanna sú sama og áður, innritunarreglur óbreyttar og öll börn sem fædd eru árið 2007 hafa fengið leikskólapláss.


 


Tillagan var samþykkt með tveimur atkvæðum, Eyþór Arnalds, D-lista, sat hjá.


Lögð var fram svohljóðandi bókun:


Bæjarráð þakkar ítarlega greinargerð framkvæmdastjóra Fjölskyldumiðstöðvar og verkefnisstjóra fræðslumála. Bæjarráð er meðvitað um hlutverk sitt í fjármálastjórn sveitarfélagsins og leitar allra leiða til að skerða ekki grunnþjónustu við íbúa Árborgar, ekki heldur hvað varðar breytingu á þeirri framkvæmd að taka inn á leikskóla 2ja ára börn hvenær sem er almanaksársins. Í samræmi við þetta leitar bæjarráð nú leiða til að útrýma biðlista eftir leikskólaplássum í Árborg og svara þannig eftirspurn um leið og störfum er bjargað.


5. 66 - Svar við fyrirspurn fulltrúa D-lista um Menningarnótt



Lagt var fram svohljóðandi svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa D-lista um heildarkostnað sveitarfélagsins vegna þátttöku í Menningarnótt.


 


Kostnaður vegna þátttöku Sveitarfélagsins Árborgar í Menningarnótt í ágúst s.l. er eftirfarandi:


Þjónustukaup, alls kr. 4.423.976


Vinnulaun, millifærð, alls kr. 198.207


Vörukaup alls kr. 2.698


 


Menningarráð Suðurlands veitti sveitarfélaginu styrk að fjárhæð kr. 200.000 vegna Menningarnætur.


 


Heildarkostnaður sveitarfélagsins vegna þátttöku í Menningarnótt er því kr. 4.384.881.


 


Á 147. fundi bæjarráðs var samþykkt aukafjárveiting til verkefnisins, kr. 2.500.000, auk vinnuframlags starfsmanna áhaldahúss, sem nam kr. 198.207,- fjárveiting nam því alls kr. 2.698.207. – m. styrk 2.898.207.-



Helstu ástæður þess að verkefnið fór fram úr fjárhagsáætlun eru þær að fleiri hópar og fyrirtæki tóku þátt í verkefninu en upphaflega var gert ráð fyrir, sömuleiðis bættist Fógetahúsið í Aðalstræti við sem sýningarrými og þar með jókst  launa og sýningarkostnaður. Ekki þarf að fjölyrða um gildi og mikilvægi þess að þiggja boð borgarstjórans í Reykjavík um að vera gestasveitarfélag á Menningarnótt 2009.


Þar með fékk fjöldinn allur af fyrirtækjum, og einstaklingum héðan af svæðinu einstakt tækifæri á að sýna og kynna afurðir sínar og framleiðslu, sömuleiðis listamenn, söfn og safnafólk og aðrir.  Samfelld skemmtidagskrá var í boði sveitarfélagsins frá hádegi, þar sem þverskurður af því besta í lista- og menningarlífi okkar var kynnt.  Hófst með skrúðgöngu, götuleikhúsi, fornbílaakstri og slagverksleik ungmenna og síðan rak hver viðburðurinn annan. Þarna komu m.a. fram lúðrasveit, einsöngvarar, stórsveit, leiklistarfólk, kórsöngur, skemmtikraftar o.fl.  Þarna kristallaðist allur sá mannauður sem Sveitarfélagið Árborg státar af.  Húsfyllir var allan daginn og um 20.000 manns munu hafa farið um Ráðhús Reykjavíkur í  dagskrárlok. 


Rétt er og að geta þess að sveitarfélagið mun nýta alla þá hluti í framtíðinni, sem sérstaklega voru hannaðir og notaðir í tengslum við kynningar utandyra s.s. Knarrarósvitalíkanið sem og hlutir, er settir voru upp í sýningarbásunum, s.s. sögumynda- og upplýsingaspjöld, fánar o.fl.


 


Eyþór Arnalds, D-lista, óskaði eftir að bókað yrði að hann harmi að kostnaður hafi farið yfir áætlun og óskar eftir sundurliðun á kostnaði og frekari skýringum.


6. 0912084 - Húsnæðismál Björgunarfélags Árborgar við Árveg

Bæjarráð frestar afgreiðslu erindisins þar til skýrari línur liggja fyrir um afdrif húsnæðisins við Árveg.


7. 0912079 - Þjónustusamningur um afnot af lóðunum Engjavegi 56b og 58 og rekstur tjaldstæðis

Bæjarráð samþykkir samninginn.


8. 0904127 - Úthlutun lóðar - Suðurtröð 5

Bæjarráð hafnar tillögu umhverfis- og skipulagsnefndar um að lóðinni að Suðurtröð 5, verði úthlutað.


9. 0912060 - Ályktun stjórnar Bárunnar um uppsagnir hjá Sveitarfélaginu Árborg


Ályktunin var lögð fram.


 


Fulltrúar B- og S-lista lögðu fram svohljóðandi bókun:


Sveitarfélagið Árborg stendur frammi fyrir því við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2010 að þurfa að skera verulega niður í rekstri annað árið í röð. Hagræðing og niðurskurður lendir á öllum málaflokkum en með mismiklum þunga eftir eðli verkefna.  Áhersla hefur verið á að draga úr fremur en leggja niður þá þjónustu sem nú er veitt.  Á þann hátt er líka reynt að standa vörð um störf hjá sveitarfélaginu við þær erfiðu aðstæður sem nú ríkja.  Því miður varð ekki hjá því komist að skerða tímabundið starfshlutfall margra starfsmanna og hópur yfirstjórnenda og sérfræðinga sem hafa fastlaunasamninga hefur samþykkt 7-15 % launalækkun annað árið í röð.  Auk þess reyndist óhjákvæmilegt að segja upp 13 starfsmönnum sem samanlagt voru í innan við 10 stöðugildum. Þá hefur yfirvinna verið lækkuð hjá mörgum starfsmönnum.  Í flestum tilvikum er um að ræða tímabundna lækkun starfshlutfalls, til eins árs. 


10. 0912091 - Erindi Sorpstöðvar Suðurlands um mögulega umhleðslustöð á gámasvæði Árborgar að Víkurheiði

Bæjarráð samþykkir að skoðaður verði sá möguleiki að koma upp umhleðslustöð á gámasvæði sveitarfélagsins að Víkurheiði og felur framkvæmdastjóra framkvæmda- og veitusviðs og sérfræðingi umhverfismála að vinna að málinu í samráði við bæjarstjóra.


11. 0904212 - Tenging milli vatnsveitna Flóahrepps og Árborgar

Bæjarráð heimilar bæjarstjóra og bæjarritara að vinna að samningi við Flóahrepp og leggja hann fyrir bæjarráð.


12. 0912090 - Undirskriftarlisti starfsmanna BES vegna sparnaðaráætlunar Sveitarfélagsins Árborgar


Listinn var lagður fram. 


Lögð var fram bókun bæjarfulltrúa B- og S-lista:


Því miður varð ekki hjá því komist við gerð fjárhagsáætlunar að skerða tímabundið starfshlutfall margra starfsmanna.  Auk þess reyndist óhjákvæmilegt að segja upp 13 starfsmönnum sem samanlagt voru í innan við 10 stöðugildum. Þá hefur yfirvinna verið lækkuð hjá mörgum starfsmönnum.  Í flestum tilvikum er um að ræða tímabundna lækkun starfshlutfalls, til eins árs. 


13. 0504045 - Frummatsskýrsla um Suðurlandsveg frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss
http://www.skipulag.is/focal/webguard.nsf/key2/sasn7pdd9c.html

Bæjarráð felur skipulags- og byggingarfulltrúa og sérfræðingi umhverfismála að vinna umsögn um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar og leggja fyrir bæjarráð.


14. 0912017 - Ársskýrsla Heilbrigðisstofnunar Suðurlands 2008

Lagt fram.


Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl:

Þorvaldur Guðmundsson
Gylfi Þorkelsson
Eyþór Arnalds
Ragnheiður Hergeirsdóttir
Ásta Stefánsdóttir


Til baka









 

Ráðhús Árborgar | Austurvegi 2 | 800 Selfoss | Sími 480 1900 | Fax 480 1901                                                                               Netfang: radhus@arborg.is