Fundargerðir auðkenndar með rauðu letri hafa ekki hlotið afgreiðslu bæjarráðs eða bæjarstjórnar.
8.3.2010
5.3.2010
26.2.2010
Skoða meira
10.3.2010
Sjá nánar8.3.2010
Sjá nánar4.3.2010
Sjá nánar1.3.2010
Sjá nánar28.1.2010
54. fundur bæjarstjórnar
54. fundur bæjarstjórnar Árborgar, kjörtímabilið 2006-2010, haldinn miðvikudaginn 27. 01. 2010 kl. 17:00 í Ráðhúsi Árborgar, Selfossi. Neðanskráðir bæjarfulltrúar eru mættir: Auk þess sitja fundinn Ragnheiður Hergeirsdóttir bæjarstjóri og Ásta Stefánsdóttir, bæjarritari sem ritar fundargerð. Forseti bæjarstjórnar setti fundinn og leitaði afbrigða til að taka á dagskrá tillögu um styrk til hjálparstarfs á Haití vegna jarðskjálfta, og svör við fyrirspurnum Þórunnar Jónu Hauksdóttur, D-lista frá því í desember. Var það samþykkt samhljóða. Dagskrá: I. Fundargerðir til staðfestingar 1. a) 0901097 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 10.des 2009 b) 165. fundur bæjarráðs ( 0901006 ) frá 17.des 2009 2. a) 166. fundur bæjarráðs ( 1001001) frá 7. jan. 2010 3. a) 167. fundur bæjarráðs ( 1001001) frá 14.jan. 2010 4. a) 168. fundur bæjarráðs (1001001) frá 21.jan. 2010 5. a) 1001002 Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar frá 21.jan. 2010 -liður 50, 1001008, tillaga að breyttri gjaldskrá byggingarleyfis- og þjónustugjalda, lagt var til að tillögunni yrði vísað til bæjarritara til yfirferðar. Eyþór Arnalds, D-lista, tók til máls. Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. -liður 51, 0601015, umsókn um lóðina Larsenstræti 1, Selfossi, bæjarstjórn samþykkir að lóðinni verði úthlutað -liður 52, 1001011, ósk um svæði fyrir höggmyndina Gretti, bæjarstjórn samþykkir að vísa erindinu til umsagnar lista- og menningarnefndar. -liður 53, 0911130, umsókn um stöðuleyfi fyrir söluvagn við Tryggvaskála. Eyþór Arnalds, D-lista, Ari B. Thorarensen, D-lista og Elfa Dögg Þórðardóttir, D-lista, tóku til máls. Eyþór Arnalds, D-lista, óskaði eftir að gert yrði fundarhlé, var það samþykkt. Gylfi Þorkelsson, S-lista, Þorvaldur Guðmundsson, B-lista, og Grímur Arnarson, D-lista, tóku til máls. Lagt var til að bæjarstjórn samþykki leyfið til sex mánaða, líkt og nefndin leggur til. Bæjarstjórn gerir þó þann fyrirvara að verði farið í framkvæmdir á lóð Tryggvaskála á leyfistímanum, falli leyfið úr gildi. -liður 58, 0912124, tillaga að deiliskipulagi af Hellislandi svæði 71, bæjarstjórn samþykkir að tillagan verði auglýst. -liður 60, 0912136, ósk um umsögn um stofnun lögbýlis í landi Litlu-Sandvíkur, bæjarstjórn veitir jákvæða umsögn um erindið. -liður 61, 0911217, ósk um umsögn um stofnun lögbýlis að Mundakotstúni, bæjarstjórn veitir jákvæða umsögn um erindið. -liður 62, 1001029, ósk um umsögn um stofnun lögbýlis að Goðanesi, bæjarstjórn veitir jákvæða umsögn um erindið og samþykkir sem landeigandi að Goðanesi, að leigutaki sæki um stofnun lögbýlis til landbúnaðarráðuneytisins. -liður 63, 0904129, tillaga að nýju deiliskipulagi við Selfosskirkju, bæjarstjórn samþykkir að tillagan verði auglýst. -liður 65, 0608118, tillaga að endurskoðun aðalskipulags Árborgar 2010-2030, Eyþór Arnalds, D-lista, og Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri, tóku til máls. Lagt var til að afgreiðslu málsins verði frestað. Var það samþykkt samhljóða. -liður 64, 0912091, umhleðsluaðstaða á gámasvæði Árborgar, Eyþór Arnalds, D-lista, Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri, Ari B. Thorarensen, D-lista, Margrét K. Erlingsdóttir, B-lista, og Gylfi Þorkelsson, S-lista, tóku til máls. Lagt var til að málinu verði vísað til áframhaldandi meðferðar í bæjarráði. Var það samþykkt samhljóða. -liður 59, 0910021, tillaga að deiliskipulagi við Ranakot, Elfa Dögg Þórðardóttir, D-lista, og Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri, tóku til máls. Fundargerðirnar voru bornar upp til staðfestingar, að undanskildum þeim liðum sem þegar höfðu verið afgreiddir, og staðfest samhljóða. II. 1001003 Þriggja ára áætlun 2011 – 2013 - fyrri umræða Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri, tók til máls og fylgdi þriggja ára áætlun úr hlaði. Eyþór Arnalds, D-lista, tók til máls. Lagt var til að þriggja ára áætlun yrði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn. Var það samþykkt samhljóða. III. Önnur mál. a) 1001144 Breyting á fulltrúum D-lista í nefndum Lagt var til að Einar Guðmundsson yrði varamaður í íþrótta- og tómstundanefnd í stað Kristínar Hrefnu Halldórsdóttur. Var það samþykkt samhljóða. b) 0912061 Lista- og menningarstefna Sveitarfélagsins Árborgar 2010-2013 Lagt var til að lista- og menningarstefna sveitarfélagsins yrði samþykkt. Var það samþykkt samhljóða. c) 1001154 Styrkur til hjálpastarfs á Haítí Þorvaldur Guðmundsson fylgdi úr hlaði eftirfarandi tillögu: Bæjarstjórn Árborgar samþykkir að styðja við hjálparstarf vegna jarðskjálftanna á Haítí. Íslendingar geta verið stoltir af sínu fólki á vettvangi hjálparstarfsins á Haítí og sýnir það enn einu sinni hversu öflugu liði við höfum á að skipa þegar hamfarir og áföll dynja yfir. Samþykkt er að leggja í þeim tilgangi fram fjárstyrk að upphæð 400 þúsund krónur og skiptist upphæðin jafnt á milli Rauða kross Íslands og Landsbjargar. Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. d) 0902082 Svar við fyrirspurn Þórunnar Jónu Hauksdóttur, D-lista. Lagt var fram eftirfarandi svar við fyrirspurn Þórunnar Jónu Hauksdóttur, D-lista frá 52. fundi: Er um að ræða brot á stjórnsýslulögum þegar breytt er stjórnsýsluframkvæmd sem er almennt kunn? Svar: Það getur verið andstætt góðum stjórnsýsluháttum að breyta stjórnsýsluframkvæmd sem er almennt kunn, án þess að kynna breytinguna fyrir fram, það telst hins vegar ekki brot á stjórnsýslulögum að breyta stjórnsýsluframkvæmd sem er almennt kunn. Ásta Stefánsdóttir, bæjarritari e) 0912047 Svar við fyrirspurn Þórunnar Jónu Hauksdóttur, D-lista, um skólamat Lagt var fram eftirfarandi svar við fyrirspurn Þórunnar Jónu Hauksdóttur, D-lista frá 53. fundi: Bókun og fyrirspurn var svohljóðandi: „Nemendur Vallaskóla og Sunnulækjarskóla greiða sama verð í skólamötuneytum skólanna en matargerð milli skólanna er afar ólík og spurning hvort gæði séu þau sömu. Hvert er raunverð fyrir matinn í hvorum skóla fyrir sig, per barn? Hefur verið gerð úttekt á gæðum matarins í hvorum skóla fyrir sig?” 1) Hvert er raunverð fyrir matinn í hvorum skóla fyrir sig, per barn? Í tengslum við könnun á kostum og göllum útboðs á rekstri skólamötuneyta á árinu 2006 vann verkefnisstjóri fræðslumála samantekt um raunkostnað hádegisverðar og hressingar í leik- og grunnskólum Árborgar. Reyndist heildarkostnaður sveitarfélagsins, að teknu tilliti til hlutdeildar foreldra í matarkostnaði, á hádegisverði og hressingu 227 krónur á dag í Vallaskóla en á þeim tíma voru að meðaltali 370 nemendur í mat á dag. Mötuneytið var opið nemendum á aldrinum 6-16 ára. Sambærilegar tölur fyrir Sunnulækjarskóla voru 136 krónur á dag en á þeim tíma voru að meðaltali 140 nemendur í mat á dag. Mötuneytið var á þessum tíma opið nemendum á aldrinum 6 – 10 ára. Það skal tekið fram að kostnaðartölur eru ekki sambærilegar milli skólanna bæði vegna fjölda nemenda í mat, launakostnaðar, tækjabúnaðar og ekki síst aldursdreifingar nemenda. Í desember sl. var sambærileg greining unnin fyrir Vallaskóla (rekstur 2008) vegna framleiðslu á mat fyrir Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri. Reyndist heildarkostnaður sveitarfélagsins, að teknu tilliti til hlutdeildar foreldra í matarkostnaði, á hádegisverði og hressingu 241 krónur á dag en á þeim tíma voru að meðaltali 558 nemendur á aldrinum 6-16 ára úr báðum skólanum í mat á dag. Sambærilegar tölur liggja ekki fyrir um Sunnulækjarskóla. 2) Hefur verið gerð úttekt á gæðum matarins í hvorum skóla fyrir sig ? Nei, enda hefur ekki þótt tilefni til að leggja í kostnað við kaup á slíkri úttekt. Mötuneyti Vallaskóla hefur sett sér stefnu, sjá slóðina http://vallaskoli.is/um-skolann/motuneyti/stefna-motuneytisins/Skólamötuneyti, og vinnur samkvæmt leiðbeiningum Lýðheilsustöðvar sem koma fram í „Handbók um skólamötuneyti”. Auk þess hefur mötuneytið notið ráðgjafar og aðstoðar Borghildar Sigurbergsdóttur, næringarfræðings. Borghildur hefur aðstoðað matráð við gerð matseðla og leiðbeint matráði og starfsmönnum. Þá hefur skólinn einnig aðgang að sérfræðingum Lýðheilsustöðvar vegna þátttöku sveitarfélagsins í verkefninu „Allt hefur áhrif einkum við sjálf”. Mötuneyti Sunnulækjarskóla vinnur samkvæmt leiðbeiningum Lýðheilsustöðvar sem koma fram í „Handbók um skólamötuneyti”. Þá hefur skólinn einnig aðgang að sérfræðingum Lýðheilsustöðvar vegna þátttöku sveitarfélagsins í verkefninu „Allt hefur áhrif einkum við sjálf”. Virðingarfyllst, Ragnheiður Thorlacius, Sigurður Bjarnason, Fleira ekki gert. Fundargerðin lesin upp og fundi slitið kl. 18:40. Þorvaldur Guðmundsson
Jón Hjartarson, forseti, V-listi,
Þorvaldur Guðmundsson, B-listi,
Margrét K. Erlingsdóttir, B-listi,
Gylfi Þorkelsson, S-listi,
Eggert Valur Guðmundsson, S-listi,
Eyþór Arnalds, D-listi,
Elfa Dögg Þórðardóttir, D-listi,
Grímur Arnarson, D-listi
Ari B. Thorarensen, varamaður, D-listi
framkvæmdastjóri
verkefnisstjóri
Margrét K. Erlingsdóttir
Jón Hjartarson
Eggert Valur Guðmundsson
Gylfi Þorkelsson
Eyþór Arnalds
Ari B. Thorarensen
Elfa Dögg Þórðardóttir
Grímur Arnarson
Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri
Ásta Stefánsdóttir, bæjarritari






