Fundargerðir

Fundargerðir auðkenndar með rauðu letri hafa ekki hlotið afgreiðslu bæjarráðs eða bæjarstjórnar.


Skoða meira



 
 
 




 



 



Auglýsingar

10.3.2010

Auglýst er eftir umsjón með tjaldstæði á Stokkseyri

Sjá nánar

8.3.2010

56. fundur bæjarstjórnar Árborgar, kjörtímabilið 2006-2010, haldinn miðvikudaginn 10. mars 2010 kl. 17:00 í Ráðhúsi Árborgar, Selfossi.

Sjá nánar

4.3.2010

Sumarvinna - okkur vantar samverkafólk í græna geirann í sumar!

Sjá nánar

1.3.2010

Styrkir til menningarstarfs í Sveitarfélaginu Árborg

Sjá nánar
Nánar

29.1.2010

169. fundur bæjarráðs

169. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2006-2010 haldinn fimmtudaginn 28. janúar 2010 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 16:00


Mætt:
Þorvaldur Guðmundsson, formaður, B-lista,
Gylfi Þorkelsson, varaformaður, S-lista,
Elfa Dögg Þórðardóttir, varamaður D-lista,
Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri,
Ásta Stefánsdóttir, bæjarritari,


Formaður leitaði afbrigða til að taka á dagskrá erindi Íslandsbanka vegna Árvegar 1. Var það samþykkt samhljóða.


Dagskrá:


1. 1001074 - Fundargerð félagsmálanefndar


41.fundur haldinn 18.janúar


-liður 8, 1001120, reglur um fjárhagsaðstoð, bæjarráð samþykkir reglurnar.


Fundargerðin staðfest.


2. 1001130 - Beiðni lóðareigenda í Tjarnarbyggð um umsögn um beiðni um að land þeirra verði tekið til landbúnaðarnota


Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar umhverfis- og skipulagsnefndar.


3. 0912089 - Beiðni Íbúðalánasjóðs um staðgreiðsluafslátt og afslátt af fasteignagjöldum íbúða sem standa auðar


Bæjarráð sér sér ekki fært að verða við erindinu, enda er ekki í reglum Sveitarfélagsins Árborgar að finna heimild til að veita afslátt af fasteignagjöldum.


4. 0911149 - Yfirfærsla málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga


Bæjarráð óskar eftir að félagsmálanefnd fjalli um greinargerð sem framkvæmdastjóri Fjölskyldumiðstöðvar vinnur að, áður en hún verður lögð fyrir bæjarráð.


5. 0806063 - Fyrirspurn frá Íslandsbanka hf. um hvort Árborg hafi áhuga á að kaupa Árveg 1


Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir fundi með fulltrúum Íslandsbanka hf. vegna málsins.


6. 1001135 - Lífshlaupið 2010 - fræðslu- og hvatningarverkefni ÍSÍ


Bæjarráð hvetur íbúa og starfsmenn til þátttöku í lífshlaupinu.


7. Fundir bæjarráðs


Ákveðið er að reglulegur fundur bæjarráðs í næstu viku falli niður.


Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 16:10


Þorvaldur Guðmundsson
Gylfi Þorkelsson
Elfa Dögg Þórðardóttir
Ragnheiður Hergeirsdóttir
Ásta Stefánsdóttir


Til baka









 

Ráðhús Árborgar | Austurvegi 2 | 800 Selfoss | Sími 480 1900 | Fax 480 1901                                                                               Netfang: radhus@arborg.is