26.2.2010
172. fundur bæjarráðs
172. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2006-2010 haldinn fimmtudaginn 25. febrúar 2010 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 16:00 Mætt: Formaður leitaði afbrigða til að taka á dagskrá beiðni Eyþórs Arnalds, D-lista, um að fyrirspurn vegna tekna Intrum af samningi við sveitarfélagið verði bætt við dagskrá fundarins. Var það samþykkt samhljóða. Dagskrá: 25.fundur haldinn 17.febrúar -liður 1, 0912054, Vor í Árborg 2010, bæjarráð samþykkir að megin dagskrá á vegum sveitarfélagsins á Vori í Árborg verði laugardaginn 15. maí n.k. með áherslu á þátttöku allrar fjölskyldunnar og að fjölskylduleikurinn "Gaman saman sem fjölskylda" standi yfir dagana 13. til 16. maí. -liður 2, 1001011, höggmyndin Grettir, bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar og felur verkefnisstjóra íþrótta-, forvarna- og menningarmála að vinna að málinu. -liður 3, 1002103, menningarstyrkir LMÁ, bæjarráð samþykkir að menningarnefnd fái 300.000 kr. til ráðstöfunar í menningarstyrki, fjárhæðin verði færð af liðnum 21-810 í fjárhagsáætlun. -liður 5, 1002079, skólasögusetur á Búðarstíg, Eyrarbakka, bæjarráð tekur undir þakkir nefndarinnar til Bergljótar Kjartansdóttur. -liður 17, 1002111, upptökustúdíó í Pakkhúsinu, bæjarráð tekur undir þakkir nefndarinnar til starfsmanna og ungmenna í Pakkhúsinu fyrir öflugt starf og frumkvæði. Fundargerðin staðfest. 2. 1002108 - Fundargerð stjórnar SASS -liður 3, fundur forsvarsmanna Heilbrigðisstofnunar Suðurlands með forsvarsmönnum sveitarfélaga á starfssvæði stofnunarinnar, bæjarráð tekur undir ályktun stjórnar SASS um óánægju með ákvarðanir um niðurskurð sem orðið hefur á fjárveitingum til HSu, sem að margar hverjar eru settar fram á mjög hæpnum forsendum. -liður 6, Jón Hjartarson, V-lista, lagði fram svohljóðandi bókun: Synjun umhverfisráðherra á staðfestingu á aðalskipulagi Flóahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna fyrirhugaðra virkjana í neðri hluta Þjórsár er í samræmi við gildandi lög og úrskurð Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins nr. 26/2008: mál nr. 25/2009 um að:........ „Að virtu öllu framangreindu er það niðurstaða ráðuneytisins að Flóahreppi hafi ekki verið heimilt að semja við Landsvirkjum með þeim hætti sem segir í 6. gr. samkomulagsins, um greiðslu kostnaðar vegna skipulagsvinnu. Umrædd 6. gr. samkomulagsins telst því ólögmæt.“ Stjórnsýslan gerir ráð fyrir að sveitarfélögin geti sótt um styrk í skipulagssjóð til að standa straum af kostnaði sé kostnaður við aðalskipulag umfram fjárhagslega getu viðkomandi sveitarfélags. Reglan um jafnræði stjórnsýslunnar á ekki við í þessu samhengi þar sem hún á aðeins við þegar unnið er skv. gildandi lögum. Mikilvægt er að sveitarfélög fari að réttum lögum við framkvæmd stjórnsýslunnar. Sú stjórnsýsla sem liðin hefur verið hingað til, að framkvæmdaaðilar greiði kostnað af aðalskipulagsgerð, er í hæsta máta óeðlileg og ber að fagna því að umhverfisráðherra hafi nú gripið í taumana og farið að lögum. Jón Hjartarson Eyþór Arnalds, D-lista, óskaði eftir að bókað yrði: Úrskurður umhverfisáðherra er ekki í neinum tengslum við þann raunveruleika sem við blasir í dag. Hér er verið að kollvarpa einum hagkvæmasta og besta virkjunarkosti á landinu á grundvelli formsatriðis, sem að auki er umdeilt. Á Íslandi er í dag atvinnuleysi og kreppa og sú pólitíska stefna að losa sig við bjargráðin er dapurleg. Fundargerðin lögð fram. 3. 1002118 - Fundargerð stjórnar Skólaskrifstofu Suðurlands -liður 2, ársreikningur Skólaskrifstofu Suðurlands og ART verkefnis fyrir árið 2009, bæjarráð óskar eftir fundi með framkvæmdastjóra og formanni Skólaskrifstofu Suðurlands vegna ársreiknings 2009 og fjárhagsáætlunar 2010 og að ársreikningur 2009 verði sendur sveitarfélaginu vegna upplýsinga í 1. og 2. lið fundargerðarinnar. Lagt fram. 4. 0812177 - Erindi mennta- og menningarmálaráðuneytisins um íþróttavakningu framhaldsskólanna 2010, beiðni um að framhaldsskólanemar fái frítt í sund. Bæjarráð samþykkir að framhaldsskólanemendur á Suðurlandi fái frítt í sund í sveitarfélaginu til 28. febrúar. 5. 1002125 - Beiðni Sýslumannsins á Selfossi um umsögn um umsókn um rekstrarleyfi - gististaðurinn Hostel, Austurvegi 28, Selfossi Bæjarráð gefur jákvæða umsögn um erindið, með þeim fyrirvara að umhverfis- og skipulagsnefnd veiti jákvæða umsögn um erindið. 6. 1002152 - Beiðni Sýslumannsins á Selfossi um umsögn um umsókn um rekstrarleyfi - Snælands Vídeó Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um erindið, enda er staðsetning staðarins og opnunartími í samræmi við reglur sveitarfélagsins og skipulag. 7. 1002153 - Beiðni Sýslumannsins á Selfossi um umsögn um umsókn um rekstrarleyfi - Riverside restaurant, Hótel Selfossi Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um erindið, enda er staðsetning staðarins og opnunartími í samræmi við reglur sveitarfélagsins og skipulag. 8. 1002115 - Tillaga bæjarfulltrúa D-lista um viðræður við aðila sem vilja stofna fiskmarkað í Árborg Lögð var fram svohljóðandi tillaga bæjarfulltrúa D-lista: Bæjarráð samþykkir að skoða möguleika á að koma á fót fiskmarkaði í Árborg sem höfði til ferðamanna. Bæjarritara verði falið að ræða við aðila sem sýnt hafa áhuga á rekstri fiskmarkaðar þar sem kannað verði hvort unnt sé að nýta hafnaraðstöðuna í sveitarfélaginu. Greinargerð: Hundruð þúsunda ferðamanna fara í gegn um sveitarfélagið Árborg ár hvert án þess að gera Selfoss, Eyrarbakka eða Stokkseyri að sérstökum viðkomustað. Frumkvæði í ferðamennsku hefur þó skilað því að fjöldi ferðamanna heimsækja söfn og veitingastaði. Þetta ber að efla með því að opna möguleika á að nýta ónotaða innviði sveitarfélagsins til hagsbóta fyrir ferðamennsku. Þá ber að minnast þess að Eyrarbakki og Stokkseyri eru söguleg sjávarþorp með heillega götumynd. Vandfundnir eru betri staðir til að hverfa aftur fortíðar og upprunans og er því ánægjulegt að áhugi sé á að stunda fiskmarkað sem gæti verið áfangastaður ferðamanna innlendra sem erlendra. Lögð var fram greinargerð áhugahóps um fiskmarkað, ásamt minnisblaði skipulags- og byggingafulltrúa. Bæjarráð þakkar áhugaverðar hugmyndir og frumkvæði. Starfsmenn sveitarfélagsins hafa þegar rætt ítarlega við áhugmenn um fiskmarkað við höfnina á Eyrarbakka. Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umsagnar rýnihóps sveitarfélagsins vegna skipulagsmála skv. tillögu skipulags- og byggingarfulltrúa. Bæjarritari verði tengiliður við áhugahópinn. 9. 1002117 - Fyrirspurn frá fulltrúum D-lista um viðgerðir á fasteignum eftir jarðskjálfta Lögð var fram svohljóðandi fyrirspurn: Lagt var fram svohljóðandi svar: Mat á skemmdum á fráveitu stendur enn yfir. Greiddar bætur fyrir skemmdir í einstökum hverfum námu í janúar kr. 137.023.456 kr. Unnið er að gerð áætlunar um viðgerðir og verður áætlunin lögð fyrir bæjarráð. Eyþór Arnalds, D-lista, óskaði eftir að bókað yrði að hann þakki fyrir upplýsingarnar og óski eftir að fá staðfestingu á heildarupphæðum vegna Selfossveitna. 10. 1002183 - Fyrirspurn frá fulltrúum D-lista - um heildartekjur Intrum vegna samnings við sveitarfélagið. Lögð var fram svohljóðandi fyrirspurn: 11. 1002155 - Framtíðarfyrirkomulag upplýsingamiðstöðva Lagt fram. Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 17:00
Þorvaldur Guðmundsson, formaður, B-lista,
Jón Hjartarson, varamaður, V-lista,
Eyþór Arnalds, bæjarfulltrúi, D-lista,
Ásta Stefánsdóttir. bæjarritari,
1. 1001076 - Fundargerð lista- og menningarnefndar
431.fundur haldinn 12.febrúar
119.fundur haldinn 15.febrúar
Er viðgerðum lokið vegna jarðskjálftana 2008? Hver er heildarfjárhæð sem sveitarfélagið hefur fengið í bætur? Hversu hárri fjárhæð hefur verið varið í viðgerðir?
Viðgerðum er ekki lokið vegna jarðskjálftanna í maí 2008, enda er enn unnið að mati á tjóni á eignum sveitarfélagsins. Í janúar s.l. nam heildarfjárhæð greiddra bóta vegna tjóns á fasteignum í eigu Árborgar kr. 88.279.076. Á þeim tíma var viðgerðarkostnaður kominn í 62.100.088 kr. Endanlegu mati á fasteignum er ekki lokið og enn eru að berast bætur fyrir einstakar eignir. Viðgerðum verður framhaldið á þessu ári.
Hverjar eru heildartekjur Intrum vegna samnings félagsins við Sveitarfélagið Árborg? Hefur þessi fjárhæð hækkað á síðustu misserum?
Þorvaldur Guðmundsson
Jón Hjartarson
Eyþór Arnalds
Ásta Stefánsdóttir










Sjá nánar