26.8.2010
8. fundur bæjarráðs Árborgar
8. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014 haldinn fimmtudaginn 26. ágúst 2010 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 08:10 Mætt: Dagskrá: 1. 1007095 - Fundargerð fræðslunefndar Greinargerð: Ítrekuð brot á framkvæmd samnings Sorpstöðvar Suðurlands við sveitarfélagið auk kvartana íbúa vegna foks á rusli, lyktar, hávaða og aukningu á mávi hafa verið til umræðu um skeið. Þá hefur lokun flugbrautar í nágrenni umhleðslustöðvarinnar og athugasemdir Flugmálastjórnar bent til þess að fleiri atriði en eitt séu í ólestri. Þrátt fyrir framangreind atriði er ekki farin sú leið að rifta samningnum en þess í stað er hann styttur með því að nýta uppsagnarákvæði til 12 mánaða. Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 10:15
Eyþór Arnalds, formaður, D-lista,
Elfa Dögg Þórðardóttir, bæjarfulltrúi, D-lista,
Eggert Valur Guðmundsson, varamaður S-lista,
Helgi Sigurður Haraldsson, áheyrnarfulltrúi,
Þórdís Eygló Sigurðardóttir, áheyrnarfulltrúi,
Ásta Stefánsdóttir. bæjarritari,
Formaður leitaði afbrigða til að taka á dagskrá fundargerð 192. fundar Sorpstöðvar Suðurlands. Var það samþykkt samhljóða.
1. fundur haldinn 19. ágúst
Fundargerðin staðfest.
2. 1005205 - Fundargerð Héraðsnefndar Árnesinga
52. fundur haldinn 20. júlí
Lagt fram.
3. 1001093 - Fundargerð stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands
294. fundur haldinn 16. ágúst
Lagt fram.
4. 1002118 - Fundargerð stjórnar Skólaskrifstofu Suðurlands
122. fundur haldinn 17. ágúst
Lagt fram
5. 1008101 - Fundargerð Héraðsráðs
167. fundur haldinn 4. ágúst
Lagt fram.
6. 1002009 - Fundargerð stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
192. fundur haldinn 20. ágúst
-liður 3, gjaldskrá, bæjarráð óskar eftir rökstuðningi fyrir hækkun gjaldskrár Sorpstöðvar Suðurlands sem nemur rúmum 8% í heild.
Lagt fram.
7. 0711074 - Beiðni um að gerður verði samningur við Tónkjallarann vegna Tónsmiðju Suðurlands um rekstur tónlistarskóla
Áður á 6. fundi
Bæjarráð samþykkir að gera samning við Tónkjallarann fyrir skólaárið 2010-2011 vegna 5 nemenda, kostnaði er vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.
Um er að ræða 50% minna framlag en skólaárið 2009-2010, enda er fjárhagsstaða sveitarfélagsins þröng. Framkvæmdastjóra er falið að ganga frá samningi til eins árs.
8. 0912091 - Beiðni Magnúsar Páls Sigurjónssonar um heimild til að eyða mávum og öðrum meindýrum í sveitarfélaginu Árborg
Áður á 6. fundi
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn um það að umsækjandi fækki mávum í kringum umhleðslusvæði og útrás fráveitu, að fengnu leyfi lögreglu og að höfðu samráði við Framkvæmda- og veitusvið og Sorpstöð Suðurlands.
9. 1008090 - Menningarsamskipti við San Antonio
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra að rita borgarstjóra San Antonio bréf og vísar erindinu, ásamt teikningum af listaverkinu, til menningarnefndar.
10. 0912091 - Tillaga um uppsögn samnings v/umhleðsluaðstöðu á gámasvæði Árborgar
Elfa Dögg Þórðardóttir, D-lista, vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Sandra Dís Hafþórsdóttir, D-lista, kom inn á fundinn.
Lögð var fram svohljóðandi tillaga:
Bæjarráð Árborgar samþykkir að segja upp samningi við Sorpstöð Suðurlands um umhleðsluaðstöðu á gámasvæði
Árborgar við Víkurheiði. Uppsagnarfrestur er 12 mánuðir og verður uppsagnarfrestur því liðinn 31. ágúst 2011.
Ítrekaðar vanefndir á framkvæmd samningsins, þótt skammt sé liðið á samningstímann, gera sveitarfélaginu erfitt fyrir að segja ekki upp samningnum á þessari stundu þar sem uppsagnarfrestur er langur.
Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt með tveimur atkvæðum gegn atkvæði fulltrúa S-lista.
Eggert Valur Guðmundsson, S-lista, óskaði eftir að bókað yrði:
Umhleðslustöð Sorpstöðvar Suðurlands tók til starfa í júní sl. og hefur starfsemin gegnið vel ef undan eru skilin tvö tilvik sem gerðust með stuttu millibili í júlí s.l.. Forsvarsmenn Sorpstöðvarinnar gripu þegar í stað til ráðstafana þegar þeim bárust kvartanir vegna þessa og ekki hefur verið bent á vanefndir eftir það. Fullyrðingar sjálfstæðismann um ítrekaðar vanefnir á framkvæmd samningsins eru furðulegar í ljósi þessa. Það er ótækt að meirihlutinn í Árborg gangi svo hart fram gagnvar samstarfssveitarfélögum á Suðurlandi. Það er ekki síður alvarlegt að úrræði sem sparar íbúum Árborgar verulegar fjárhæðir í sorphirðukostnaði skuli sæta hálfgerðum ofsóknum af hálfu meirihlutans í Árborg. Á meðan ekki tekst að fá keypt eða leigt land sem uppfyllir lagaskilyrði fyrir nýjan urðunarstað hér á Suðurlandi, eða að bæjarstjórn Ölfuss endurskoði afstöðu sína til urðunar í Kirkjuferjuhjáleigu, þá þarf að aka með sorp til urðunar á höfuðborgarsvæðið. Umhleðslustöð við Selfoss dregur verulega úr aksturskostnaði meðan þessi stað er uppi. Engar áætlanir liggja fyrir um betri lausnir á þessari stundu og lýsir undirritaður þungum áhyggjum sínum af þessari þróun mála og leggst gegn uppsögn á samningnum.
Eyþór Arnalds, D-lista, óskaði eftir að bókað yrði:
Með uppsögn samningsins er samningstímabilið stytt úr þremur árum í eitt. Kvartanir íbúa hafa haldið áfram og hefur skrifleg kvörtun borist eftir síðast fund, varðandi lykt, fjúkandi rusl og hávaða. Þá verkur furðu að nú verður gjaldskrá umhleðslustöðvar hækkuð verulega. Það er von fulltrúa D-lista að úrbætur verði á sorpmálum á næstu 12 mánuðum.
Sandra vék af fundi eftir afgreiðslu málsins og Elfa kom inn á fundinn að nýju.
11. 1006079 - Tillaga um uppsögn samninga við Intrum
Lögð var fram svohljóðandi tillaga:
Bæjarráð samþykkir að segja upp samningum um milliinnheimtu við Intrum. Uppsagnarfrestur er sex mánuðir og verður sá tími nýttur til að endurskoða fyrirkomulag innheimtu.
Greinargerð:
Samningar sveitarfélagsins við Intrum hafa rúman uppsagnafrest og verður sá tími notaður til að ljúka þeirri endurskoðun á innheimtuferlum sem nú stendur yfir. Jafnframt verði leitað tilboða í milliinnheimtu þar sem hagsmunir íbúa og sveitarfélagsins verði hafðir í fyrirrúmi.
Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt með tveimur atkvæðum, Eggert Valur Guðmundsson, S-lista, sat hjá.
12. 1008091 - Afsal fyrir Gagnheiði 57
Bæjarráð samþykkir afsalaði og felur framkvæmdastjóra að undirrita afsalið.
13. 1008092 - Trúnaðarmál
Fært í trúnaðarbók.
Eyþór Arnalds
Elfa Dögg Þórðardóttir
Eggert Valur Guðmundsson
Helgi Sigurður Haraldsson
Þórdís Eygló Sigurðardóttir
Ásta Stefánsdóttir










Sjá nánar