2.9.2010
9. fundur bæjarráðs Árborgar
9. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014 haldinn fimmtudaginn 2. september 2010 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 08:10 Mætt: Dagskrá: Greinargerð: Í lok Júní voru tæplega 400 manns án atvinnu í Árborg samkvæmt uppl. frá Vinnumálastofnun. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar telja afar mikilvægt að sett verði í gang vinna sem miði að því að efla atvinnulífið í Árborg og nágrenni. Eðlilegt er að skoðaðir verði allir möguleikar á aðkomu sveitarfélagsins að því mikilvæga verkefni. Bæjarfulltrúar S lista Eyþór Arnalds
Eyþór Arnalds, formaður, D-lista,
Elfa Dögg Þórðardóttir, bæjarfulltrúi, D-lista,
Helgi Sigurður Haraldsson, bæjarfulltrúi, B-lista,
Eggert Valur Guðmundsson, áheyrnarfulltrúi, S-lista,
Þórdís Eygló Sigurðardóttir, áheyrnarfulltrúi, V-lista
Ásta Stefánsdóttir. framkvæmdastjóri, sem jafnframt ritaði fundargerð.
Formaður leitaði afbrigða til að taka á dagskrá samkomulag um aðilaskipti vegna leigusamnings við Heilbrigðisstofnun Suðurlands og bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. Var það samþykkt samhljóða.
1. 1006056 - Fundargerð framkvæmda- og veitustjórnar
5. fundur haldinn 24. ágúst
Fundargerðin staðfest.
2. 1008567 - Fundargerð Afréttamálafélags Flóa- og Skeiða
Aðalfundur haldinn 28. apríl
Lagt fram.
3. 1002094 - Fundargerðir heilbrigðisnefndar Suðurlands 2010
128. fundur haldinn 19. ágúst
Fundargerðin lögð fram.
-liður 3d) Sorpstöð Suðurlands v/söfnunarstöðvar, Selfossi
Formleg áminning heilbrigðisnefndar sýnir svo ekki verður um villst að misbrestur hefur verið á starfseminni.
4. 1002118 - Fundargerðir Skólaskrifstofu Suðurlands 2010
123. fundur haldinn 24. ágúst
Lagt fram.
5. 1008772 - Leiðir til að draga úr ónæði vegna lausagöngu katta
Bæjarráð samþykkir að dýraeftirlitsmaður nýti þær heimildir sem er að finna í samþykktum sveitarfélagsins til að stemma stigu við tjóni og ónæði af völdum katta.
6. 1007091 - Beiðni um styrk vegna stofnunar myndlistarskóla
Bæjarráð samþykkir afnot af kennslustofu í Vallskóla skólaárið 2010-2011 vegna myndlistarskóla í Árborg.
7. 1008795 - Vinnuhópur um mögulegar leiðir til eflingar atvinnulífs
Tillaga frá fulltrúum S-lista
Bæjarráð samþykkir að setja á fót vinnuhóp sem vinni tillögur og skili til bæjarráðs um mögulegar leiðir til að eflingar atvinnulífs í sveitarfélaginu.
Í upphafi þessa kjörtímabils lagði meirihluti D lista niður atvinnumálanefnd sveitarfélagsins. Það var ákvörðun meirihluta D lista að atvinnumál yrðu í framtíðinni á forræði bæjarráðs en ekki hefur enn verið fjallað með markvissum hætti í bæjarráði um leiðir til eflingu atvinnulífs í sveitarfélaginu.
Vinnuhópurinn verði skipaður fulltrúum frá öllum flokkum í bæjarstjórn auk fulltrúa frá atvinnulífinu. Æskilegt er að vinnuhópurinn verði skipaður sem allra fyrst og skili hugmyndum og tillögum til bæjarráðs svo hægt verði að taka tillit til niðurstaðna vinnuhópsins við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
8. 0806063 - Leigusamningur við Heilbrigðisstofnun Suðurlands vegna Björgunarmiðstöðvar, Árvegi 1, yfirlýsing um aðilaskipti
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra að undirrita samkomulag við Heilbrigðisstofnun Suðurlands vegna leigu á hluta Björgunarmiðstöðvar að Árvegi 1.
9. 0912043 - Undirritun samnings um þjónustusvæði Suðurlands um málefni fatlaðra
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins. Bæjarráð felur framkvæmdastjóra að ganga frá samningi um framlög vegna sameiginlegra þátta sem sveitarfélagið skal annast.
10. 1008774 - Yfirlit yfir íbúaþróun í Sveitarfélaginu Árborg 2008 - 2010
Lagt fram.
11. 1009021 - Staða fjármála Sveitarfélagsins Árborgar, bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga
Bréfið var lagt fram, bæjarráð tekur alvarlega þær ábendingar sem koma fram í bréfinu og mun halda áfram að taka föstum tökum á rekstrinum.
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl. 09:30.
Elfa Dögg Þórðardóttir
Helgi Sigurður Haraldsson
Eggert V. Guðmundsson
Þórdís Eygló Sigurðardóttir
Ásta Stefánsdóttir










Sjá nánar