Nánar

9.9.2010

4. fundur bæjarstjórnar Árborgar

4. fundur bæjarstjórnar Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014, haldinn miðvikudaginn 8. september 2010 kl. 17:00 í Ráðhúsi Árborgar, Selfossi.


Neðanskráðir bæjarfulltrúar eru mættir:
Ari Björn Thorarensen, D-lista, forseti bæjarstjórnar
Eyþór Arnalds, D-lista,
Elfa Dögg Þórðardóttir, D-lista,
Sandra Dís Hafþórsdóttir, D-lista,
Kjartan Björnsson, varamaður, D-lista,
Helgi Sigurður Haraldsson, B-lista,
Eggert Valur Guðmundsson, S-listi,
Arna Ír Gunnarsdóttir, S-listi
Þórdís Eygló Sigurðardóttir, V-lista,


Auk þess situr fundinn Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri og Rósa Sif Jónsdóttir sem ritar fundargerð.


Forseti bæjarstjórnar setti fundinn og bauð sérstaklega velkomin, Örnu Ír Gunnarsdóttur og Tómas Ellert Tómasson á sinn fyrsta bæjarstjórnarfund


Dagskrá:


I. Fundargerðir til staðfestingar


1. a)  1006056
 Fundargerð framkvæmda- og veitustjórnar  frá   16. ágúst
 b) 7. fundur bæjarráðs ( 1006055 ) frá   19. ágúst


2. a)  1007095
Fundargerð fræðslunefndar  frá   19. ágúst
b) 8. fundur bæjarráðs ( 1006055 ) frá   26. ágúst


3. a)  1006056
Fundargerð framkvæmda- og veitustjórnar frá  24. ágúst
b)  9. fundur bæjarráðs ( 1006055 ) frá    2.  sept.   


- liður 1 a) Elfa Dögg Þórðardóttir, fulltrúi, D-lista, tók til máls um fundargerð, 4. fundar framkvæmda- og veitustjórnar, mál 1. nr. 1008004, Vatnsöflun úr Árbæjarlandi.


Fundargerðirnar voru bornar undir atkvæði, og samþykktar samhljóða.


Elfa Dögg Þórðardóttir vék sæti við afgreiðslu liðar 2 b) 8. fundar bæjarráðs liður 10 og Tómas Ellert Tómasson kom inná fundinn.


- liður 2 b), fundargerð 8. fundar bæjarráðs, 10. liður mál nr. 0912091, tillaga að uppsögn samning v/umhleðsluaðstöðu á gámasvæði Árborgar.
Tillaga um að bæjarráð Árborgar samþykki að segja upp samningi við Sorpstöð Suðurlands um umhleðsluaðstöðu á gámasvæði Árborgar að Víkurheiði. Uppsagnafrestur er 12 mániðir og verður uppsagnarfrestur því liðinn 31. ágúst 2011 var borin undir atkvæði þar sem að mótatkvæði kom fram í bæjarráði. 


Tillaga var borin undir atkvæði og samþykktar með 6 atkvæðum fulltrúa, B- og D-lista, fulltrúar S-lista greiddu atkvæði á móti og fulltrúi V-lista sat hjá.


Fundargerðirnar voru bornar undir atkvæði að undanskildum þeim lið sem þegar hafði verið samþykktur og staðfestar samhljóða.


Elfa Dögg Þórðardóttir kom inn á fundinn.


- liður 3 b) Eyþór Arnalds, fulltrúi, D-lista og Eggert Valur Guðmundsson, fulltrúi, S-lista, tóku til máls um fundargerð, 9. fundar bæjarráðs, mál 11. nr. 1009021, Bréf frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga.
-  liður 3 a) Elfa Dögg Þórðardóttir, fulltrúi, D-lista tók til máls um fundargerð, framkvæmda- og veitustjórnar.


Fundargerðirnar voru bornar undir atkvæði, og samþykktar samhljóða.


II. Breyting á samþykktum Sveitarfélagsins Árborgar – síðari umræða


 Eggert Valur Guðmundsson, fulltrúi, S-lista, Kjartan Björnsson, fulltrúi, D-lista og Eyþór Arnalds, fulltrúi, D-lista tóku til máls.


 Samþykktin var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða


III.  Samþykkt um kattahald – síðari umræða
 
 Helgi S. Haraldsson, fulltrúi, B-lista og Eyþór Arnalds, fulltrúi, D-lista, tóku til máls.
 Samþykktin var borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum fulltrúa, D-lista, fulltrúi B-lista greiddi atkvæði á móti og fulltrúar S- og V-lista sátu hjá.


IV. Önnur mál
  Engin


Fleira ekki gert. Fundargerðin lesin upp og fundi slitið kl. 17:30


Eyþór Arnalds 
Elfa Dögg Þórðardóttir
Ari Björn Thorarensen 
Sandra Dís Hafþórsdóttir
Kjartan Björnsson 
Helgi Sigurður Haraldsson
Eggert Valur Guðmundsson 
Arna Ír Gunnarsdóttir
Þórdís Eygló Sigurðardóttir 
Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri
Rósa Sif Jónsdóttir, ritari


Til baka