9.9.2010
10. fundur bæjarráðs Árborgar
10. fundur bæjarráðs Árborgar, kjörtímabilið 2010-2014 haldinn fimmtudaginn 9. september 2010 í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi, kl. 08:10 Mætt: Formaður leitaði afbrigða til að taka á dagskrá umsögn Sveitarfélagsins Árborgar um mat á umhverfisáhrifum endurvinnslustöðvar í Hellislandi. Var það samþykkt samhljóða. Dagskrá: 1. 1002033 - Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga Helgi S. Haraldsson, B-lista, lagði fram svohljóðandi bókun, bæjarfulltrúar D- og V-lista taka undir bókunina:
Eyþór Arnalds, formaður, D-lista,
Elfa Dögg Þórðardóttir, bæjarfulltrúi, D-lista,
Eggert Valur Guðmundsson, bæjarfulltrúi, S-lista,
Helgi Sigurður Haraldsson, áheyrnarfulltrúi, B-lista,
Þórdís Eygló Sigurðardóttir, áheyrnarfulltrúi, V-lista,
Ásta Stefánsdóttir. framkvæmdastjóri, sem ritaði fundargerð.
776. fundur haldinn 26. ágúst
Lagt fram.
2. 1009022 - Húsnæðismál og aðstaða Stangaveiðifélags Selfoss, beiðni um afnot af "gömlu kartöflugeymslunni".
Í gildi er leigusamningur við Félagið kartöflugeymsluna á Selfossi, notendur geymslunnar s.l. vetur voru 54. Bæjarráð óskar eftir fundi með formanni Stangveiðifélags Selfoss n.k. fimmtudag um aðrar lausnir.
3. 1008795 - Tillaga bæjarfulltrúa S-lista, vinnuhópur um mögulegar leiðir til eflingar atvinnulífs
Áður á dagskrá á 9. fundi
Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarfulltrúa S-lista og útfærslan verði með þeim hætti að bæjarráð haldi reglulega aukafundi um atvinnumál fram að áramótum.
4. 0607037 - Samningur við JÁVerk vegna framkvæmda við Larsenstræti
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra undirritun samnings þegar fylgiskjöl liggja fyrir.
5. 0912043 - Samningur um þjónustusvæði Suðurlands um málefni fatlaðra
Áður á dagskrá á 9. fundi
Bæjarráð felur framkvæmdastjóra undirritun samnings um sameiginlegt þjónustusvæði Suðurlands um þjónustu við fatlaða, með þeim fyrirvara að samningur þjónustusvæðisins við Sveitarfélagið Árborg liggi fyrir eigi síðar en 20. október.
6. 1008874 - Milliuppgjör - 6 mánaða
Lagt var fram milliuppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins.
Eggert Valur Guðmundsson, S-lista, lagði fram svohljóðandi bókun:
Niðurstöður 6 mánaða rekstraruppgjörs sveitarfélagsins sýna að þær hagræðingaraðgerðir sem fráfarandi bæjarstjórnarmeirihluti greip til er að skila sér með skýrum hætti í rekstrinum útkoma einstaka málaflokka er fagnaðarefni og ástæða til þess að þakka stjórnendum deilda og starfsfólki sveitarfélagsins sérstaklega fyrir góð störf við erfiðar aðstæður.
Bæjarfulltrúar S lista óska eftir því að eftirfarandi upplýsingar verði lagðar fram á hverjum fundi bæjarstjórnar fram til áramóta.
1.Upplýsingar um lausafjárstöðu bæjarsjóðs.
2 Rekstraryfirlit miðað við gildandi fjárhagsáætlun.
3 Frávik og fjárfestingar sem ekki er gert ráð fyrir í gildandi fjárhagsáætlun.
Upplýsingar sem óskað er eftir hér að ofan koma til með að okkar mati að hjálpa bæjarfulltrúum til þess að fylgjast betur með rekstri sveitarfélagsins og taka upplýstar ákvarðanir.
Bæjarfulltrúar S lista
Samþykkt var að umbeðin gögn verði lögð fram. Rekstraryfirlit liggur nú fyrir vegna 6 og 7 mánaða og framhald verður á framlagningu slíkra gagna.
Eyþór Arnalds, D-lista, lagði fram svohljóðandi bókun:
Miklar sveiflur eru á milli fyrstu sex mánaða og tólf mánaða í áætlunum og bókhaldi sveitarfélagsins þess vegna er mikilvægt að skoða sex mánaða uppgjör í samhengi við tólf mánaða útgönguspár. Endurskoðun gerir ráð fyrir 492 mkr tapi á bæjarsjóði, sem er betra en fyrri áætlun gerði ráð fyrir, þar sem gert var ráð 629 mkr tapi, munar því 137 mkr. á upphaflegri áætlun og endurskoðaðri fjárhagsáætlun bæjarsjóðs. Þá stefnir í að framúrkeyrsla á samstæðu verði 6% en upphafleg fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 10%. Það er því ljóst að enn er mikil þörf á hagræðingu.
7. 1008874 - Milliuppgjör - 7 mánaða
Lagt var fram 7 mánaða uppgjör.
8. 0909018 - Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2010
Verður lagt fram á fundinum
Endurskoðuð fjárhagsáætlun var lögð fram og vísað til afgreiðslu á næsta bæjarstjórnarfundi.
9. 0912124 - Umsögn Sveitarfélagsins Árborgar um mat á umhverfisáhrifum Endurvinnslustöðvar íslenska gámafélagsins ehf í Hellislandi
Elfa Dögg Þórðardóttir, D-lista, vék af fundi við afgreiðslu málsins. Sandra Dís Hafþórsdóttir, D-lista, kom inn á fundinn við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð staðfestir umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa um mat á umhverfisáhrifum Endurvinnslustöðvar Íslenska gámafélagsins ehf í Hellislandi.
Sandra Dís vék af fundi að afgreiðslu lokinni og Elfa Dögg kom inn á fundinn að nýju.
10. 1008887 - Erindi Sorpstöðvar Suðurlands um nýjan urðunarstað á Suðurlandi
Bæjarráð þakkar erindið og hvetur nýja stjórn Sorpstöðvar Suðurlands til að hraða vinnu við að koma upp nýjum urðunarstað. Mikill kostnaðarauki er af því fyrir aðildarsveitarfélög Sorpstöðvar Suðurlands að flytja sorp til urðunar á höfuðborgarsvæðinu.
Fyrir löngu síðan lá fyrir að urðun sorps yrði hætt í Kirkjuferjuhjáleigu. Það ráðaleysi og aðgerðaleysi sem hefur einkennt störf stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands síðan, við að finna nýjan urðunarstað á Suðurlandi, finnst mér með eindæmum. Því skora ég á nýja stjórn Sorpstöðvar Suðurlands, sem kosin verður á þingi SASS, 13.-14. september nk. að einhenda sér í málið og leysa til framtíðar sorpmál okkar Sunnlendinga.
Helgi Sigurður Haraldsson áheyrnarfulltrúi B-lista í Bæjarráði Árborgar.
11. 1008881 - Stjórnsýslukæra - samningur um sölu og öflun vatns við Flóahrepp og Landsvirkjun
Lagt fram.
Fundargerð lesin upp og fundi slitið kl: 10:00
Eyþór Arnalds
Elfa Dögg Þórðardóttir
Eggert V. Guðmundsson
Helgi Sigurður Haraldsson
Þórdís Eygló Sigurðardóttir
Ásta Stefánsdóttir










Sjá nánar