Ráðgjafinn heim er aðstoð sem snýr að foreldrum barna á aldrinum 2 – 12 ára með ADHD og skyldar raskanir (mótþróaþrjóskuröskun, tourette, þráhyggju- áráttu, kvíða og depurð). Starfsmaður fer heim til foreldra og aðstoðar þá við að takast á við erfiða hegðun barnanna í raunverulegum heimilisaðstæðum..
Markmið ráðgjafans eru að;
*kenna foreldrum aðferðir sem ætlað er að koma í veg fyrir erfiða hegðun, ýta undir æskilega hegðun og takast á við erfiða hegðun barna sinna heima hjá sér eða í öðrum aðstæðum þar sem foreldrarnir eru til staðar.
*aðstoða foreldra við að yfirfæra aðferðir sem þeir hafa lært á uppeldisnámskeiði á hegðun barna sinna í raunaðstæðum (heima,í búðinni, matarboði o.s.frv.).
*aðstoða foreldra við að koma á dagsskipulagi og nota það.
*aðstoða foreldra á álagstímum og veita foreldrum aðstoð í samskiptum við skóla þegar það á við.
Hægt er að sækja um á ,,Mín Árborg“ eins er að finna umsókn á heimasíðu sveitarfélagsins www.arborg.is
Starfsmenn Ráðgjafans heim eru:
Andri Már Númason, grunnskólakennari, andrimar@arborg.is
Harpa Kristín Hlöðversdóttir, leikskólakennari, harpakh@arborg.is










