Hér eru hagnýtar upplýsingar um leikskóla Árborgar ásamt helstu áherslum þeirra í leikskólastarfinu:
Leikskólanefnd er skipuð af bæjarstjórn Árborgar og fer hún í umboði bæjarstjórnar með þau málefni leikskóla í Árborg sem henni eru falin. Nefndin tilheyrir Fjölskyldudeild Árborgar.
Sumarleyfi leikskóla í Árborg
Leikskólafulltrúi Árborgar
Sérkennsluráðgjafi, Ásthildur Bjarnadóttir, asthildur@arborg.is, annast m.a. faglega ráðgjöf til leikskólakennara og starfsmanna vegna barna sem njóta sérfræðiaðstoðar eða sérkennslu. Næsti yfirmaður leikskólaráðgjafa v/sérkennslu er leikskólafulltrúi.
Fjölskyldumiðstöð Árborgar er í Ráðhúsinu að Austurvegi 2 Selfossi sími 480-1900.
Umsóknareyðublöð fyrir leikskóladvöl liggja frammi í Ráðhúsinu á Selfossi, í leikskólunum á Eyrarbakka og á Stokkseyri.
Í Sveitarfélaginu Árborg eru sex leikskólar. Nýjasti leikskólinn er leikskólinn Jötunheimar Norðurhólum 3, Selfossi en hann var vígður 5. september 2008.
Í öllum leikskólunum er boðið upp á morgunverð, hádegisverð og síðdegishressingu. Allir leikskólarnir byggja starf sitt á lögum um leikskóla, reglugerð þar um og Aðalnámskrá leikskóla frá 1999. Nokkrir leikskólanna eru búnir að gefa út sína skólanámskrá.
Mismunandi leiðir og áherslur eru lagðar til grundvallar í uppeldisstarfi leikskólanna.
Skipulagsdagar
Skipulagsdagar eru tveir á skólaári. Að öllu jöfnu að hausti og milli jóla og nýjárs eða í ársbyrjun. Leikskólunum er lokað á skipulagsdögum.
Leikskólafulltrúi Árborgar
Innritunarreglur fyrir leikskóla Árborgar
Umsókn í leikskóla Árborgar










Sjá nánar




