Innritunarreglur fyrir leikskóla Árborgar
Innritunarreglur fyrir leikskóla Árborgar
1. Skilyrði fyrir leikskóladvöl barns er lögheimili í Sveitarfélaginu Árborg og er farið eftir upplýsingum um búsetu og hjúskaparstöðu samkvæmt þjóðskrá. Foreldrar sem hyggjast flytja í sveitarfélagið geta sótt um leikskóladvöl en barn fær ekki úthlutað leikskólaplássi fyrr en lögheimili hefur verið flutt og skulu foreldrar tilkynna leikskólafulltrúa sérstaklega um lögheimilisflutninginn.
2. Miða skal að því að öll börn í 4 elstu leikskólaárgöngum í sveitarfélaginu fái úthlutað leikskólaplássi. Þegar því takmarki er náð er heimilt að taka inn yngri börn. Umsóknum er skipt í þrjá dvalartíma; fyrir hádegi, eftir hádegi og allan daginn.
3. Leikskólaplássi er úthlutað eftir reglum um forgang og miða skal við fæðingarár og fæðingardag barns og ganga eldri börn fyrir. Miða skal að því að börn fái pláss í sama leikskóla og eldri systkini, nema annars sé óskað, enda komi það fram á umsókn.
4. Reglur um forgangsröðun barna í leikskóla Árborgar eru eftirfarandi:
1. forgangur: Fötluð börn og börn einstæðra foreldra. Vottorð frá viðurkenndum greiningaraðila fylgi með umsókn fatlaðra barna.
2. forgangur: Börn sem búa við félagsleg/andleg eða líkamleg frávik en eru ekki greind fötluð. Óska má vottorðs frá til þess bærum sérfræðingi. sérfræðingi.
3. forgangur: Börn námsmanna, séu báðir foreldrar í fullu námi. Vottorð skóla fylgi umsókn .
Sérstakan forgang frá 18 mánaða aldri hafa börn sem falla undir 1. flokk í reglum um sérkennsluþjónustu í leikskólum Árborgar frá 10. janúar 2002
5. Miðað er við að leikskóladvöl hefjist eftir sumarleyfi leikskóla þegar elsti árgangur hefur grunnskólagöngu. Úthlutun leikskólaplássa er í höndum leikskólafulltrúa og fer að jafnaði fram á tímabilinu apríl til maí ár hvert og því eru foreldrar hvattir til að senda inn umsókn fyrir lok marsmánaðar. Foreldrum er tilkynnt bréflega um úthlutun og skulu þeir staðfesta leikskóladvöl innan sjö daga frá dagsetningu bréfsins.
6. Reglur þessar taka gildi frá og með 25. janúar 2007 og þá falla úr gildi reglur frá 24. nóvember 2005 með áorðnum breytingum.
Samþykkt á fundi í leikskólanefnd 17. janúar 2007
Staðfest á fundi í bæjarráði 25. janúar 2007








