Vinnuskóli Árborgar
SJÁ AUGLÝSINGU – SUMARSTÖRF HJÁ ÁRBORG 2012
ÁGÆTI STARFSMAÐUR, FORELDRAR OG FORRÁÐAMENN
Við í Vinnuskóla Árborgar bjóðum þig velkomin(n) til starfa í sumar. Vinnuskólinn verður starfræktur með svipuðum hætti og undanfarin ár, það að segja unnið verður við ýmiskonar nýframkvæmdir og viðhaldsverkefni, hreinsun á grænum svæðum og götum Árborgar.
Markmið:
Í vinnuskólanum leggjum við m.a. áherslu á eftirfarandi:
Framkvæmdir og skipulagningu á opnum svæðum.
Fegra og snyrta umhverfi okkar og halda því óaðfinnanlegu.
Viðhalda jákvæðri ímynd um vinnuskólann og gera hana enn jákvæðari.
Kenna unglingum verklag, virðingu, stundvísi og aga.
Símanúmer Vinnuskólans: 480-1515 og 480-1526 og hefur hann aðsetur í Hrísholti 9 á Selfossi, við Háeyrarveg á Eyrarbakka og Eyrarbraut 41 á Stokkseyri.
Starfsreglur:
• Vinnuskólinn er tóbakslaus vinnustaður. Það gildir á leið í og úr vinnu, á vinnusvæði og í matar- og kaffitímum.
• Mæta ber stundvíslega til vinnu og skila fullum vinnudegi.
• Læst verkfærakista fyrir hvern hóp verður á svæði viðkomandi hóps þar sem möguleiki er að geyma persónulega hluti nemanda.
• Beiðni um leyfi eða frívikur afgreiðir verkstjóri á skrifstofu vinnuskólans.
• Ef veikindi eiga sér stað verða foreldrar eða forráðamenn að tilkynna veikindi símleiðis að morgni hvers dags sem barnið er veik á skrifstofu skólans í síma
480-1515 eða 480-1526
• Fara skal vel með verkfæri, stunda vinnuna samviskusamlega og fara eftir leiðbeiningum og fyrirmælum leiðbeinanda.
• Greidd eru laun fyrir fræðsludaga ef viðkomandi tekur þátt í allri dagskránni.
• Starfsfólk leggur sér sjálft til allan fatnað og skal hann vera samkvæmt aðstæðum og verkefnum. Öllum er ráðlagt að merkja fatnað og vinnuvettlinga, skó og stígvél. Vinnuskólinn skaffar ekki vettlinga en við mælum með því að keypt séu tvö pör í byrjun sumars sem duga á yfir sumarið.
• Engin ábyrgð er tekin á fötum nemenda, reiðhjólum eða öðrum hlutum sem þeir hugsanlega taka með sér á vinnustað.
• Notkun farsíma við vinnu er ekki heimil.
• Einelti og ofbeldi er litið alvarlegum augum í vinnuskólanum.
Brot á starfsreglum Vinnuskólans getur þýtt brottvísun, að undangenginni áminningu.
Brjóti nemandi vísvitandi reglur vinnuskólans getur flokkstjóri áminnt nemandann og verkstjóri vísað nemanda úr vinnu tímabundið, en endanleg brottvikning er í höndum yfirverkstjóra í samráði við verkstjóra og flokkstjóra.
1. Brot tiltal, áminning.
2. Brot rekin(n) í einn dag.
3. Brot rekin(n) alveg.
Ef um alvarlegri brot er að ræða getur nemanda verið vísað úr vinnuskólanum á staðnum.
Haft er samband við foreldra ef nemanda er vísað úr vinnu tímabundið eða endanlega.
Ef eineltismál koma upp í vinnuskólanum verður farið eftir aðgerðaráætlun og viðbragðsáætlun sem að vinnuskólinn hefur útbúið sér.








