Elfa Dögg Þórðardóttir er 2. maður á lista Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Árborgar. Elfa er fædd á Selfossi 11. júní 1972 og er dóttir Þórðar Þorsteinssonar og Sigurbjargar G. Jónsdóttur frá Selfossi.
Eiginmaður Elfu er Jón Þórir Frantzsson, framkvæmdastjóri Íslenska gámafélagsins og saman eiga þau 2 börn, Arnór 9 ára og Söndru 6 ára.
Elfa er stúdent frá Fjölbrautarskóla Suðurlands 1993 og lauk BA prófi í Frönsku og Norsku árið 1997.
Árið 2004 lauk hún námi af tveimur brautum frá Garðyrkjuskóla ríkisins, af umhverfisbraut og í garðplöntubraut. Elfa er nú að ljúka Mastersnámi frá Háskóla Íslands í umhverfis og auðlindafræðum með verkefni sínu um orkuvinnslu úr lífmassa.
Elfa hefur starfað sem framkvæmdastjóri SÍNE(Samband íslenskra námsmanna erlendis), við stundakennslu í grunnskóla, auk þess að hafa starfað mikið við Garðyrkju síðustu árin.
Áhugamál eru umhverfis- og skipulagsmál, garðyrkja, hlaup, náttúruvísindi og fleira.
Elfa Dögg er 1. varaforseti bæjarstjórnar Árborgar, formaður í framkvæmda- og veitustjórn, aðalmaður í (á); bæjarráði,
Fulltrúi á (í) aðalfundi atvinnuþróunarfélags Suðurlands, SASS, Skólaskrifstofu Suðurlands, Héraðsnefnd Árnesinga, Landsþingi Samb.ísl.sveitarfélaga, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands,
Varamaður í samstarfsnefnd starfsmannafélögum.
Netfang: elfa@arborg.is










Sjá nánar