Eyþór Arnalds

 Eyþór Arnalds er 1. maður á lista Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Árborgar og er aðalmaður í bæjarráði.  
Eyþór er stúdent frá MH 1984, hefur lokið BA prófi í tónsmíðum og greiningu, burtfararprófi í sellóleik, stundað nám í lögfræði og er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. 
Eyþór hefur starfað við stjórnun hjá hátæknifyrirtækjum frá 1994, bæði á Íslandi, Bandaríkjunum og í Bretlandi. Eyþór var framkvæmdastjóri hjá OZ 1994-1998, forstjóri Íslandssíma 1999-2003, framkvæmdastjóri hjá Enpocket 2004-2005, en starfar nú sem framkvæmdastjóri Strokks Energy sem sérhæfir sig í grænni stóriðju.
Eiginkona Eyþórs er Dagmar Una Ólafsdóttir.

Eyþór er formaður bæjarráðs
Aðalmaður í (á); kjaranefnd
Fulltrúi á (í) aðalfundi, Héraðsnefndar Árnesinga, atvinnuþróunarfélags Suðurlands, SASS, Skólaskrifstofu Suðurlands, fulltrúaráði Brunavarna Árnessýslu, Landsþingi Samb.ísl.sveitarfélaga, samstarfsnefnd með starfsmannafélögum,  Eignarhaldsfélagi Suðurlands, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, Borgarþróunar ehf, Fasteignafélags Árborgar ehf, Fasteignafélags Árborgar slf.
Varamaður á aðalfundi Sorpstöðvar Suðurlands,      

Netfang: 
arnalds@gmail.com



Prenta þessa síðu