Helgi S. Haraldsson
Helgi Sigurður Haraldsson er 1. maður á lista Framsóknarflokksins í bæjarstjórn Árborgar.
Helgi útskrifaðist með stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Suðurlands árið 1987. Hann gerðist síðan verslunarstjóri hjá Kaupfélagi Árnesinga að Laugarvatni. Hann hefur síðan unnið hjá Hagkaupum og Kaupás, sem verslunarstjóri og innkaupastjóri. Hann er í dag svæðisstjóri Eimskips/Flytjanda á Suðurlandi. Helgi er kvæntur Sigríði Önnu Guðjónsdóttur íþróttakennara við Vallaskóla á Selfossi og eiga þau tvö börn, Jóhönnu Bríeti og Hjalta Snæ. Helgi er fæddur á Selfossi 9.júlí 1967.
Helgi hefur starfað mikið að íþróttamálum og var m.a formaður Frjálsíþróttasambands Íslands í þrjú ár og er núna formaður Frjálsíþróttadeildar UMF. Selfoss og hefur verið það í 13 ár. Einnig var hann varabæjarfulltrúi kjörtímabilið 2006-2010.
Helgi er fulltrúi í (á) aðalfundi Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, SASS, Skólaskrifstofu Suðurlands, Héraðsnefnd Árnesinga, aðalfundi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.
Netfang: helgihar@simnet.is








