Ragnheiður er félagsráðgjafi að mennt og með BA próf í uppeldisfræðum auk þess sem hún hefur tekið fjölmörg námskeið á sviði starfsmannastjórnunar, opinbers reksturs og stjórnsýslu. Hún var bæjarstjóri Árborgar 2006-2010, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Suðurlandi 2001-2006, yfirfélagsráðgjafi við Réttargeðdeildina að Sogni 1994-2001 og starfaði áður m.a. við Fjölbrautaskóla Suðurlands og Félagsmálastofnun Selfoss. Ragnheiður er fædd á Selfossi þann 28. júní árið 1962. Hún á tvær dætur og fjögur stjúpbörn. Ragnheiður er í sambúð með Torfa Áskelssyni framkvæmdastjóra.
Ragnheiður er aðalmaður í bæjarráði og á sæti í stjórn Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands, í stjórn Markaðsstofu Suðurlands, í Stjórnarnefnd um málefni aldraðra og er varaformaður Ferðamálaráðs Íslands.
Aðalmaður í (á); aðalfundi Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, aðalfundi SASS, aðalfundi Skólaskrifstofu Suðurlands, fulltrúaráði Brunavarna Árnessýslu, fulltrúaráði Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Suðurlands, Héraðsnefnd Árnesinga, Landsþing Sambands ísl. Sveitarfélaga, aðalfundi Heilbrigðiseftirlit Suðurlands.
Varamaður í atvinnuþróunarnefnd, kjaranefnd.
Netfang ragnheidurh@internet.is










Sjá nánar