Sandra Dís Hafþórsdóttir er 4. maður á lista Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Árborgar. Sandra Dís Hafþórsdóttir er fædd 12.02.1974 og uppalin á Eyrarbakka og er búsett þar í dag.
Sandra er gift Reyni Jóhannssyni og eiga saman 2 börn, Daníel Þór (6 ára) og Sunnu Bryndís (3 ára).
Sandra Dís er með stúdentspróf frá Menntaskólanum að Laugarvatni frá árinu 1994 og lauk Cand.Oecon próf af endurskoðunarsviði Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands árið 2000 og starfar í dag sem fjármálastjóri Árvirkjans ehf., en hefur áður starfað m.a. hjá KPMG, Búnaðarbankanum og Kaupþingi banka.
Sandra Dís er 2. varaforseti bæjarstjórnar Árborgar
Varamaður í bæjarráði
Formaður í fræðslunefnd
Varamaður í Íþrótta- og tómstundanefnd
Fulltrúi í (á); aðalfundi Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, SASS, Skólaskrifstofu Suðurlands, Héraðsnefnd Árnesinga, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands
Varamaður í (á) Landsþingi Sambands ísl. Sveitarfélaga, samstarfsnefnd með starfsmannafélögum
Netfang: sandradis@arborg.is










Sjá nánar