Þórdís Eygló Sigurðardóttir

Forsíða » Stjórnsýsla » Bæjarfulltrúar » Þórdís Eygló Sigurðardóttir
Þórdís Eygló Sigurðardóttir er 1. maður á lista Vinstri Grænna í Árborg. Þórdís Eygló er forstöðumaður sundstaða Árborgar.
Þórdís er fædd þann 28. desember árið 1950, er ekkja og á þrjú börn.
Hún hefur unnið hin ýmsu störf um ævina svo sem við afgreiðslu, umönnun, leigubílaakstur og fl., síðustu fjórtán ár við sundlaugar og allt sem þeim tengist. Sótti fjarnám í rekstri og stjórnun við Háskólann á Akureyri frá árinu 2006 til 2008.
Kjörin trúnaðarmaður St.Rv.(fulltrúi) 1998 sat jafnframt  í samninganefnd félagsins. Kjörin í stjórn St.Rv. 2001 og sat til 2008 er hún hætti.Gegndi jafnframt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir félagið s.s.: Í sat Menninga- og skemmtinefnd St.Rv. Formaður úthlutunarnefndar orlofshúsa St.Rv. Sat í ferðanefnd lífeyrisþega í St.Rv. Formaður starfsmannafélags ÍTR 2004 til 2008. Leysti af forstöðumanns orlofsbúða St.Rv. á Úlfljótsvatni í sumarleyfum 2004 – 2007. Er starfandi í stjórn Samtaka um Kvennaathvarf. Er í stjórn S.F.S.I. Samtök forstöðumanna Sundstaða Íslands.

Þórdís Eygló er fulltrúi í (á); aðalfundi, Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, SASS, Skólaskrifstofu Suðurlands, Héraðsnefnd Árnesinga, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.

Netfang:  thordise@arborg.is