Hlutverk og meginverkefni bæjarstjórnar

Forsíða » Stjórnsýsla » Bæjarstjórn » Hlutverk og meginverkefni bæjarstjórnar

Bæjarstjórn fer með stjórn Árborgar skv. ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annara laga. Jafnframt fer bæjarstjórn með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum bæjarins, að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn.

Bæjarstjórn skal gæta hagsmuna bæjarins og vera í forsvari fyrir hann og vinna að sameiginlegum velferðarmálum bæjarbúa.

Bæjarstjórn annast þau verkefni, sem henni er falið í lögum, reglugerðum og samþykktum.

Þá getur bæjarstjórn ákveðið að bærinn taki að sér verkefni sem varða íbúa bæjarins sérstaklega enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum.

Helstu verkefni bæjarstjórnar Árborgar eru:

  1. Að kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar, bæjarráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir, skv. VI kafla sveitarstjórnarlaga og skoðunarmenn til að annast endurskoðun ársreikninga bæjarins skv. VIII kafla sveitarstjórnarlaga. Ennfremur að ráða bæjarstjóra og aðra fasta starfsmenn bæjarins skv. VII kafla fyrrnefndra laga.
  2. Að setja samþykktir og gjaldskrár, eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
  3. Að stjórna fjármálum bæjarins, stofnana hans og fyrirtækja, skv. VIII kafla sveitarstjórnarlaga.
  4. Að ákveða stjórnkerfi bæjarins og ráða helstu starfsmenn hans.

Á fyrsta ári hvers kjörtímabils skal bæjarstjórn semja þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál bæjarins og skal þessi þriggja ára áætlun vera til leiðbeiningar við gerð árlegrar fjárhagsáætlunar.

Áætlunina skal endurskoða árlega í tengslum við afgreiðslu fjárhagsáætlunarinnar og skal þá framlengja áætlunina um eitt ár.

Bæjarstjórn skal afgreiða fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, bæjarfyrirtækja og stofnana fyrir lok janúarmánuðar ár hvert að undangengnim tveim umræðum í bæjarstjórn.

Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur bæjarstjórn ákvörðun um nýtingu tekjustofna bæjarsjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár, ef um það er að ræða og um ráðstöfun fjármagns á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytingar. Þá skal við gerð fjárhagsáætlunar hafa hliðsjón af veltufjárstöðu bæjarsjóðs í byrjun fjárhgsárs og áætla fyrir þeim breytingum, sem nauðsynlegt er talið að gera á veltufjárstöðunni.

Fjárhagsáætlun skal vera meginregla um fjármálastjórn bæjarins á fjárhagsárinu og ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr bæjarsjóði nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöldin séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af bæjarstjórn. Samþykki bæjarstjórn fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar, skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda s.s. með lækkun annara útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé.

Bæjarstjórn heldur reglubundna fundi annan miðvikudag hvers mánaðar kl. 17:00. Heimilt er þó að fella niður fundi í tvo mánuði að sumarlagi. Fundarstaður er Félagsheimilið Ársalir.

Bæjarstjórnarfund skal að jafnaði halda í heyranda hljóði og almenningi heimilaður aðgangur að þeim, eftir því sem húsrúm leyfir.

Bæjarstjórn getur ákveðið, að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum s.s. viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál, sem æskilegt er vegna hagsmuna bæjarins, að rædd verði fyrir luktum dyrum.

Bæjarstjóri situr fundi bæjarstjórnar með málfrelsi og tillögurétti.

Bæjarritari ritar fundargerðir bæjarstjórnar.