Gjaldskrá byggingaleyfis- þjónustugjalda
Gjaldskrá
byggingarleyfis- og þjónustugjalda
í Sveitarfélaginu Árborg
- gr.
Gjaldskylda
Innheimta skal gjöld fyrir leyfi til framkvæmda, sem áhrif hafa á umhverfið og breyta ásýnd þess og fyrir leyfi til að reisa, stækka eða breyta byggingarmannvirkjum. Jafnframt skal innheimta gjöld fyrir þjónustu byggingarfulltrúa og fyrir vottorð og leyfi sem hann lætur í té.
2. gr.
Ráðstöfun gjalda
Innheimt gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari skulu renna til greiðslu hluta kostnaðar sveitarfélagins við þjónustu skipulags- og byggingarfulltrúa við lóðarhafa og byggingaraðila.
- gr.
Byggingarleyfisgjald
Greiða skal byggingarleyfisgjald fyrir útgáfu á byggingarleyfi sem byggingarfulltrúi / skipulags- og byggingarnefnd hefur veitt.
Innifalið í byggingarleyfisgjaldi er ein yfirferð aðaluppdrátta, yfirferð séruppdrátta, byggingarleyfi, útmæling fyrir greftri, útmæling og hæðarsetning fyrir uppslætti og útsetning lóðar, byggingareftirlit, lögbundnar úttektir, fokheldisvottorð og vottorð um lokaúttekt.
Fjárhæð byggingarleyfisgjalds fer skv. eftirfarandi töflu:
a)
|
Íbúðarhúsnæði |
kr. |
|
|
i. Einbýlishús |
pr. hús |
120.000 |
|
ii. Parhús, tvíbýlishús, raðhús á einni hæð |
pr.íbúð |
100.000 |
|
iii. Raðhús á fleiri en einni hæð, fjölbýlishús |
pr. íbúð |
100.00 |
|
iv. Fjölbýlishús, þrjár hæðir og hærri með fjórum |
pr.íbúð |
60.000 |
b)
|
Atvinnu- og þjónustuhús og stofnanir |
kr. |
|
Gjald pr. m² húsnæðis |
250 |
c)
|
Önnur hús og viðbyggingar við önnur hús en skv. b) |
kr. |
|
Sólstofur, garðhús, heimilisgróðurhús, bílgeymslur fyrir mest 2 bíla, gripahús og viðbyggingar allt að 20 fermetrar |
45.000 |
|
Viðbyggingar 20 – 100 m² |
60.000 |
|
Ef viðbygging er stærri en 100 m² skal greiða sömu gjöld og af því húsnæði sem byggt er við. |
|
d)
|
Önnur úttektarskyld mannvirki. |
kr. |
|
Opin skýli, stöplar og undirstöður |
60.000 |
Ef um er að ræða húsnæði með blandaðri notkun skal byggingarleyfisgjald lagt á eftir a) og b) lið þessarar greinar.
[Gjöld skv. a) – d) lið hækka í samræmi við hækkun byggingarvísitölu, með grunn frá 1987, eins og hún er skráð hjá Hagstofu Íslands hverju sinni. Grunnvísitala er vísitala desembermánaðar 2007, 377,7 stig]. [1]
4. gr.
Þjónustu- og leyfisgjöld
Greiða skal eftirtalin þjónustu- og leyfisgjöld fyrir þjónustu sem byggingarfulltrúi veitir umfram þá sem innifalin er í byggingarleyfisgjaldi:
a)
|
kr. |
|
|
Yfirferð aðal- og séruppdrátta sem ekki er innifalin í öðru gjaldi |
10.500 |
|
Úttekt sem ekki er innifalin í öðru gjaldi |
6.000 |
|
Afgreiðslugjald og endurnýjun leyfis án breytinga |
6.000 |
|
Framkvæmdaleyfi |
10.500 |
|
Aukavottorð um byggingarstig og stöðuúttekt |
14.500 |
|
Vottorð vegna vínveitingaleyfa |
14.500 |
|
Eignaskiptayfirlýsingar, hver umfjöllun |
10.500 |
|
Fyrir grenndarkynningu, minniháttar |
10.500 |
|
Fyrir grenndarkynningu, umfangsmikil |
40.000 |
|
Húsaleiguúttektir, íbúðarhúsnæði |
10.500 |
|
Húsaleiguúttektir, annað húsnæði |
14.500 |
|
Útkall byggingarfulltrúa að óþörfu |
6.000 |
|
Stöðuleyfi |
6.000 |
|
Fyrir hverja auka útsetningu lóðar/húss; pr.mælingu |
14.500 |
|
Leyfi til að skipta um utanhússklæðningu á einbýlis-, par- og raðhúsum |
12.000 |
|
Leyfi til að skipta um utanhússklæðningu á fjölbýlishúsum |
60.000 |
|
Leyfi til að skipta um utanhússklæðningu, annað húsnæði |
*) |
|
Stöðuúttekt, sem ekki er innifalin í öðru gjaldi |
13.500 |
|
Staðbundin viðurkenning iðnmeistara |
6.000 |
*) Vegna leyfis til að skipta um utanhússklæðningu á öðru húsnæði en íbúðarhúsnæði greiðist afgreiðslugjald og gjald fyrir hverja úttekt.
b)
| Ljósritun | A1 pr. eintak |
kr. |
|
Ljósritun |
A2 pr. eintak |
200 |
|
Ljósritun |
A3 pr. eintak |
100 |
|
Ljósritun |
A4 pr. eintak |
50 |
Gjöld skv. a) lið hækka í samræmi við hækkun byggingarvísitölu, með grunn frá 1987, eins og hún er skráð hjá Hagstofunni hverju sinni. Grunnvísitala er vísitala desembermánaðar 2007, 377,7 stig.
5. gr.
Deiliskipulag einkalands
Nýti landeigandi eða framkvæmdaaðili heimild 23. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 til að gera tillögu til sveitarstjórnar að deiliskipulagi eða breytingu á deiliskipulagi ber hann af því allan kostnað, þó að undanskildum auglýsingakostnaði.
6. gr.
Innheimta – lögveð
Byggingarfulltrúi annast innheimtu byggingarleyfis- og þjónustugjalda samkvæmt gjaldskrá þessari.
Gjöldum skv. gjaldskránni fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð og má innheimta gjaldfallin gjöld með fjárnámi.
Komi til vanskila á greiðslu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari skal byggingarfulltrúi synja um útgáfu vottorðs fyrir viðkomandi mannvirki.
7. gr.
Gjalddagi
Gjalddagi byggingarleyfisgjalds skv. 3. gr. er við útgáfu byggingarleyfis, sem skal skilyrt að því leyti að það taki ekki gildi fyrr en byggingarleyfisgjald hafi verið greitt. Eindagi er 20 dögum eftir gjalddaga.
Frestur er ekki veittur á greiðslu byggingarleyfisgjalds þó svo að byggingarleyfishafi fresti byggingarframkvæmdum.
Gjalddagi þjónustugjalda er við útgáfu reiknings fyrir veitta þjónustu. Eindagi er 20 dögum eftir gjalddaga.
8. gr.
Endurgreiðsla
Byggingarleyfisgjald verður ekki endurgreitt falli byggingarleyfishafi frá notkun leyfisins eða það fellur úr gildi.
9. gr.
Gildistaka
Gjaldskrá þessi sem öðlast þegar gildi er samþykkt af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar með heimild í 53. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, sbr. einnig 27. gr. byggingarreglugerðar nr. 441/1998. Jafnframt falla úr gildi þau ákvæði gjaldskrár fyrir gatnagerðargjald, stofngjald holræsa, stofngjald, vatnsveitu, byggingarleyfis- og þjónustugjöld í Sveitarfélaginu Árborg nr. 1185/2007 sem fjalla um byggingarleyfis- og þjónustugjöld.Samþykkt af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar, 28. janúar 2008.
Ragnheiður Hergeirsdóttir bæjarstjóri.
B-deild – Útgáfud.: 28. febrúar 2008








