Gjaldskrá fyrir kattahald í Sveitarfélaginu Árborg
GJALDSKRÁ
fyrir kattahald í Sveitarfélaginu Árborg.
1. gr.
Eigendur katta í Sveitarfélaginu Árborg skulu greiða bæjarsjóði skráningargjald samkvæmt gjaldskrá þessari, sem er ætlað til að standa undir kostnaði við framkvæmd samþykktar um kattahald í Sveitarfélaginu Árborg, nr. 587/2009.
2. gr.
Við umsókn um skráningu kattar skal innheimt gjald að upphæð kr. 1.785.
3. gr.
Við afhendingu handsamaðs kattar sem veldur ónæði eða óþrifum skal eigandi hans greiða handsömunargjald, kr. 12.600.
Að auki skal greiða þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi kattar. Óskráða ketti má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu og greiðslu skráningargjalds og annars áfallins kostnaðar.
Ef eigandi gefur sig ekki fram innan sjö sólarhringa og greiðir handsömunargjaldið og annan áfallinn kostnað er heimilt að aflífa köttinn, sbr. 8. gr. samþykktar um kattahald í Sveitarfélaginu Árborg.
Gjaldskrá þessi er samþykkt af bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar með vísan í 10. gr. samþykktar um kattahald í Sveitarfélaginu Árborg, og staðfestist hér með samkvæmt 25. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, til að öðlast gildi þegar við birtingu.
Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá fyrir kattahald í Sveitarfélaginu Árborg nr. 33/2011.
Selfossi, 18. janúar 2012.
Ásta Stefánsdóttir,framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar.
__________
B-deild – Útgáfud.: 1. febrúar 2012








