Gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Árborg

Gjaldskrá
Fyrir sorphirðu í Sveitarfélaginu Árborg
nr. 1190/2006
1.gr.
Sveitarfélagið Árborg annast sorphirðu frá öllu íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu. Bæjarstjórn Árborgar er heimilt að leggja á sérstakt sorphirðugjald samkvæmt samþykkt um sorphirðu í Sveitarfélaginu Árborg frá 16. janúar 2002.
2. gr.
Sorphirðugjald fyrir íbúðir er árlega sem hér greinir:
|
|
120 lítra tunna |
240 lítra tunna |
|
Gjaldtegund: |
|
|
|
-Sorphreinsunargjald (kr/ár) |
15.660 |
15.660 |
|
-Sorpeyðingargjald (kr/ár) |
11.100 |
17.940 |
|
Samtals (kr/ár) |
26.760 |
33.600 |
* Gildir frá 30. desember 2010
Gjaldið skal innheimt með fasteignagjöldum og er gjalddagi sorpgjalds hinn sami og fasteignargjalda. Sorpgjaldið nýtur lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hverskonar samningsveði og aðfararveði.
Af sorpgjaldi vegna sumarhúsa og annars íbúðarhúsnæðis í sveitarfélaginu sem nýtt er til tímabundinnar dvalar, án fastrar búsetu, er heimilt að veita allt að 50% afslátt.
Sjá nýja grein (3.gr.) sem bætist við gjaldskrána
Önnur gjöld:
- Pokagjald: Sérmerktir sorppokar: 400 kr/stk
- Tunnugjald: Nýjar 120 og 240 l tunnur: 4.000 kr/ílát
- Samsetningar- og útkeyrslugjald: 1.300 kr/ílát
Pokagjald, tunnugjald og/eða samsetningar- og útkeyrslugjald greiðist við afhendingu.
Samsetningar- og útkeyrslugjald greiðist við afhendingu nýrra tunna og ef skipt er milli stærða.
Sé skipt milli stærða er tunna sem fyrir er tekin upp í nýja tunnu án endurgjalds.
Sé tunnum fækkað er tunna keypt á upprunalegu verði að frádreginni afskriftarupphæð sem nemur 1/10 fyrir hvert ár sem liðið er frá því að notkun hófst. Sé þess óskað að halda tunnu er heimilt að skipta um lok þannig að ómerkt lok komi í stað upprunalegs loks með auðkenni sveitarfélagsins.
3. gr
Gjaldskrá þessi, sem er samin og samþykkt af bæjarstjórn Árborgar, staðfestist hér með, skv. 5. mgr 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum og öðlast gildi þegar í stað.
Samþykkt í Heilbrigðiseftirliti Suðurlands 15. desember 2010.
Samþykkt í bæjarstjórn 27. janúar 2009.
Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri
Sveitarfélagsins Árborgar








