Skólastefna
Skólastefna sveitafélagsins Árborgar “grunnskólar”
- Stefna Sveitarfélagsins Árborgar er að efla grunnskóla sveitarfélagsins, með menntun og mannrækt að leiðarljósi.
- Grunnskólar Árborgar skulu vera metnaðarfullar menntastofnanir og meðal styrkustu stoða samfélagsins.
- Húsnæði og aðstaða skólanna skal vera eins og best verður á kosið, svo starfsemin geti blómstrað og nemendum og starfsfólki líði vel.
- Lög, reglugerðir og aðalnámskrá grunnskóla marka rammann um starfið, ásamt ákvörðunum bæjarstjórnar hverju sinni.
- Lögð verði áhersla á rekstrarlegt sjálfstæði skóla og ábyrgð þeirra vel skilgreind.
- Hlutverk sveitarfélagsins er að marka stefnu í skólamálum, framfylgja henni og hafa eftirlit með rekstri og ráðstöfun þess fjár sem lagt er til fræðslumála.
- Skólastefnu Árborgar skal endurskoða á 3ja – 5 ára fresti hið minnsta, meta hvað áunnist hefur og varða leiðina til framtíðar í ljósi þess.
Leiðarljós grunnskóla Árborgar
- að grunnskólar sveitarfélagsins standist samanburð við bestu skóla innan lands og utan
- að lögð verði áhersla á að rækta með nemendum sjálfstæð vinnubrögð, félagslega færni og ábyrgð
- að faglegur metnaður ríki og einkenni allt skólastarf í sveitarfélaginu
- að hagsmunir nemandans séu ávallt í fyrirrúmi í starfsemi skólanna í Árborg
- að skólarnir stuðli að fjölbreyttum kennsluháttum til að virkja sem best hæfileika nemenda
- að stuðlað sé að jákvæðum viðhorfum til menntunar og skólastarfs í sveitarfélaginu
- að nemendur njóti alhliða menntunar við hæfi hvers og eins sem taki mið af eigin samfélagi og alþjóðlegu í senn
- að samvinna ríki milli skóla og skólastiga í sveitarfélaginu
- að menntun og skólastarf í Árborg stuðli að metnaði, vinnusemi og góðri líðan nemenda
- að skólarnir hafi frumkvæði að öflugri samvinnu við heimilin
- að skólastarfið sé metið reglulega og umbótaáætlanir kynntar
Markmið og leiðir næstu 5 árin
Samstarf heimila og skóla verði styrkt á markvissan hátt
- Aukin áhersla verði lögð á þátttöku foreldra í skólastarfi enda er það ein mikilvægasta forsenda þess að börn þeirra nái árangri í námi
- Foreldrar verði upplýstir reglulega um námsgengi barna sinna
- Skólinn gangist fyrir fræðslu til foreldra um uppeldis- og menntamál í samvinnu við samtök þeirra
- Skólinn bjóði nemendum og foreldrum ráðgjöf ef árangur er óviðunandi
- Áhersla verði lögð á markvisst forvarnastarf í samstarfi við foreldra frá og með 1. bekk
- Foreldrar bera frumábyrgð á námi og hegðun barna sinna
Tónlistarkennsla verði aukin til muna
- Fornám verði í tónlist í 1. – 4. bekk
- Ávallt verði starfandi tónmenntakennarar við skólana
- Markvisst verði unnið að því að efla söng- og tónlistarlíf í skólunum
Samstarf skóla og skólastiga verði aukið
- Heildstæð skólastefna verði í sveitarfélaginu
- Áhersla skal lögð á samstarf grunnskóla sveitarfélagsins eins og kostur er
- Markvisst verði unnið að því að auka samstarf leik- og grunnskóla, til dæmis með það að markmiði að auðvelda nemendum að færast milli skólastiga
- Samstarf verði milli grunnskólanna og Tónlistarskóla Árnesinga
- Samvinna verði við Fjölbrautaskóla Suðurlands vegna nemenda í 9. og 10. bekk og sérdeildar
Skólarnir nálgist það markmið að verða meðal þeirra bestu
- Allar kennarastöður verði mannaðar réttindafólki
- Stuðlað sé að faglegri umræðu innan skólanna
- Þróunarverkefni séu metin reglulega og árangur þeirra metinn
- Líðan nemenda sé metin frá ári til árs og stefnt markvisst að því að gera hana sem besta
- Fylgst sé með námsgengi nemenda að loknum grunnskóla, til dæmis í samanburði við aðra skóla
- Kappkostað verði að við skólana starfi vel menntað og metnaðarfullt starfsfólk og það hvatt til sí- og endurmenntunar
- Skólarnir setji sér vel skilgreind markmið og noti mismunandi mælikvarða til að meta árangur og líðan nemenda
- Sett séu háleit markmið um námsárangur
Unnið verði markvisst að vinnusemi og metnaði nemenda
- Vefir skólanna verði nýttir markvisst til fræðslu og upplýsingagjafar
- Kappkostað sé að velja vinnuaðferðir og verkefni sem vakið geta áhuga og höfða til ólíkra einstaklinga
- Afburðanemendum sé sinnt sérstaklega með verkefnum og vinnubrögðum við hæfi
- Stutt verði sérstaklega við nemendur sem eiga erfitt með nám
- Nemendasamningar verði nýttir þegar þurfa þykir og þeim fylgt eftir
- Stuðlað sé markvisst að því að nemendur taki ábyrgð á eigin námi
Fjölbreytni verði aukin í náms- og kennsluaðferðum
- Ýtt verði undir nýbreytni og þróunarstarf innan skólanna
- Námsgreinar verði teknar reglulega til skoðunar, sérfræðingar kallaðir til samstarfs með kennurum og nýjungar teknar upp
- Á öllum skólastigum verði áhersla lögð á að kynna nemendum nánasta umhverfi sitt og lífríki þess
- Vægi þemanáms og hópvinnu verði umtalsvert
- Markvisst og samfellt forvarnastarf verði á öllum skólastigum
- Stuðlað verði að umbótasinnuðum viðhorfum og vinnubrögðum meðal starfsmanna
Rekstrarlegt sjálfstæði skólanna verði aukið
- Ákveðin fjárhæð sé ætluð skólunum á hverju ári, m.a. með hliðsjón af nemendafjölda
- Skólarnir ráðstafi fé sínu og forgangsraði verkefnum
- Gerð verði 3-5 ára fjárhags- og framkvæmdaáætlun í samstarfi við starfsfólk skólanna
- Rekstrarleg ábyrgð skólanna verði skilgreind
Aðstaða í skólunum verði sveitarfélaginu til sóma
- Kappkostað verði að skólarnir og umhverfi þeirra sé aðlaðandi og vistlegt
- Aðkoma að skólunum sé örugg fyrir gangandi, hjólandi og aðra umferð
- Aðgengi fatlaðra sé til fyrirmyndar
- Nemendur og starfsfólk eigi kost á heitri máltíð í skólanum og hafi góða aðstöðu til að neyta matar síns
- Leiksvæði og tæki séu við hæfi nemenda
- Allir starfsmenn hafi góða vinnuaðstöðu
Þannig afgreidd á fundi skólanefndar grunnskóla
13. desember 2007
Sigurður Bjarnason
Verkefnastjóri








