Gámasvæði Víkurheiði 4

Forsíða » Stjórnsýsla » Svið og deildir » Framkvæmda- og veitusvið » Gámasvæði Víkurheiði 4

Gámasvæði Víkuheiði 4 - sími: 482-2510
Sjá gámasvæði

Lokað á sunnudögum

Opnunartímar gámasvæðisins:
Mánudaga til laugardaga kl.  13:00 -17:00.
Sunnudaga lokað

Sumaropnun Gámasvæðisins við Víkurheiði á Selfossi
verður frá kl 13:00-18:00, mánudaga-laugardaga,
 frá og með 28. apríl nk. til 1 september nk.

 

Gámar eru undir eftirfarandi 13 sorpflokka:
“Pappi” Allur bylgjupappi, t.d. pappakassar og pitsukassar.
“Járn” Niðursuðudósir, málmlok af krukkum en einnig eru húsgögn oft að hluta eða alveg úr málmi.
“Fernur/dagblöð” Dagblöð, tímarit, auglýsingapóstur, prentpappír, hreinar og tómar umbúðir úr sléttum pappa,
“Grófur úrgangur” Ónýtir fyrirferðarmiklir hlutir sem ekki er hægt að pressa eins og t.d. ónýt húsgögn
“Hjólbarðar” Allar tegundir hjólbarða
“Garðaúrgangur” Allur garðúrgangur
“Jarðefni” grjót,hellur,múrbrot,gler, postulín gifs og flísar ásamt öllum gler umbúðum undan matvælum.
“Stór Raftæki ” fara stærri raftæki svo sem þvottavélar,eldavélar, þurrkarar, svo eitthvað sé nefnt.
“Timbur” Allt timbur
“Rauði krossinn” Allar heilar og hreinar vefnaðarvörur,t.d. fullorðins fatnað,barna fatnað
“Raftæki” Ryksugur,straujárn,brauðristar,hljómtæki,kaffivélar
“Spilliefni” Málning,lím,þynnir ýmiskonar leysiefni,rafhlöður,lakk olíuefni
“Plastílát” Sjampóbrúsar,plastbakkar undan ýmsum matvörum, hreinar skyr og jógúrt dósir.

Umsókn um reikningsviðskipti

Nýtt svæði fyrir sorpmóttöku í Sveitarfélaginu Árborg að Víkurheiði 4
Starfsmenn á gámasvæðinu aðstoða og leiðbeina við flokkun sorps.
Umhverfismál fá aukið vægi í sveitarfélaginu með tilkomu nýs gámasvæðis og aukinnar flokkunar sorps. Aukin flokkun leiðir til lægri kostnaðar við sorphirðu og urðun. Markmiðið er að jafnvægi og sanngirni náist í málaflokknum þannig að “sá sem mengar borgar”.