Félagsleg ráðgjöf

Fjárhagsaðstoð
Fjárhagsaðstoð er til einstaklinga og fjölskyldna sem hafa ónógar tekjur sér til framfærslu og geta ekki  séð fyrir sér og sínum sbr. IV. og VI. Kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og reglugerð um fjárhagsaðstoð sem samþykkt var í Árborg 16. desember 2004. Fjárhagsaðstoð er einnig veitt þar sem löggjöf mælir fyrir um aðgerðir, sem hafa í för með sér fjárútlát t.d. ákvæði barnaverndarlaga nr. 80/2002  VI.  og XII. kafla. Umsókn undirritaðri af umsækjanda skal lögð inn til félagsþjónustunnar á sérstökum umsóknareyðublöðum sem liggja frammi í afgreiðslu.  Einnig er hægt að nálgast umsónareyðublöð hér.

Barnavernd
Að barnavernd er unnið samkvæmt barnaverndarlaga nr. 80/2002.  um viðunandi uppeldisskilyrði.  Það er gert með því að styrkja uppeldishlutverk fjölskyldunnar og beita úrræðum til verndar einstökum börnum þegar það á við.  Með börnum er átt við einstakling innan 18 ára aldurs.

Forsjármál
Unnið skv. Barnalögum nr. 20/1992.  Málin berast frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, sýslumannsembættum, dómstólum  og er þá verið að óska eftir umsögn  félagsmálanefndar(barnaverndarnefndar).

Umgengnisréttarmál
Unnið skv. Barnalögum nr.20/1992. Málin  berast frá sýslumönnum og dómstólum þar sem óskað er eftir umsögn og  eða vinnu við að koma á samkomulagi. Einnig beiðnir um ráðgjöf frá foreldrunum sjálfum til þess m.a. að reyna að fyrirbyggja deilur.

Ættleiðingarmál
Unnið skv. lögum um ættleiðingu nr. 130/1999. Málin berast frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Gera þarf mjög nákvæma greinargerð um hagi væntanlegra kjörforeldra og hæfni þeirra til að taka að sér kjörbarn.  Þetta á við bæði hvað varðar ættleiðingar erlendis frá og ættleiðingar stjúpbarna.

Fósturmál
Unnið skv. reglugerð um ráðstöfun barna í fóstur nr. 532/1996. Starfsmenn fjölskyldusviðs annast málefni barna sem fara í varanlegt fóstur þar til forsjárskyldur falla niður skv. lögum.  Gerð er úttekt á hæfni og högum þeirra sem óska eftir að gerast fósturforeldrar.

Vistunarmál
Varða málefni barna sem fara í tímabundið fóstur, í skammtímavistun á stofnun eða í sveitadvöl.  Auk þess fela þau í sér umsjón með stuðningsfjölskyldum og tilsjónarmönnum.

Dagmæður
Um daggæslu barna í heimahúsum gildir reglugerð nr. 198/1992 sem sett var með heimild í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Félagsmálanefnd veitir leyfi til gæslu barna í heimahúsum í Árborg og hefur eftirlit með starfseminni. 
Umsókn um leyfi til daggæslu í heimahúsi
Dagforeldrar í Árborg

Áfengis- og vímuvarnir
Lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991  setja ábyrgð á herðar sveitarfélögum  varðandi aðstoð við einstaklinga og fjölskyldur, sem eiga í erfiðleikum vegna  áfengis- og vímuefnaneyslu.  Í þessu felst m.a. aðstoð við einstaklinga sem eiga við áfengis- og vímuefnavanda að stríða í samvinnu við aðila sem vinna að vímuvarnamálum og ráðgjöf og leitarstarf meðal unglinga. 

Jafnréttismál
Félagsmálanefnd fer með jafnréttismál samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000.



Prenta þessa síðu