Húsnæðismál
Samkvæmt lögum um húsaleigubætur nr. 100/1994, lögum um húsnæðismál nr. 44/1998 og húsaleigulögum nr. 36/ 1997 veita starfsmenn fjölskyldusviðs fólki ráðgjöf og alhliða upplýsingar um húsnæðismál og húsaleigusamninga. Umsýsla á félagslegu húsnæði, úthlutun leiguíbúða í eigu bæjarins, greiðslu húsaleigubóta og úthlutun viðbótarlána er á vegum deildarinnar.
Húsaleigubætur
Þeir leigjendur eiga rétt á húsaleigubótum sem leigja íbúðarhúsnæði til búsetu og eiga þar lögheimili. Það eru skilyrði húsaleigubóta að húsaleigusamningur um viðkomandi húsnæði sé til 6 mánaða eða lengri tíma og að honum hafi verið þinglýst. Námsmenn eru undanþegnir skilyrði um lögheimili.
Sótt er um húsaleigubætur hjá félagsþjónust Árborgar að Austurvegi 2, Selfossi
Hægt er að nálgast bækling um húsaleigubætur á heimasíðu félagsmálráðuneytisins http://www.felagsmalaraduneyti.is/utgefid-efni/nr/1438
Félagsleg heimaþjónusta Sjá bækling
Þjónusta við öryrkja og aldraða íbúa í Árborg miðar að því að þeir geti búið eins lengi og unnt er við eðlilegt heimilislíf. Heimaþjónusta er veitt eftir mati sem unnið er af yfirmanni félagslegrar heimaþjónustu í samstarfi við hinn aldraða, hinn fatlaða, sjúkrahús, heilsugæslu eða aðstandendur viðkomandi.
Unnið er samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga 40/1991, lögum um málefni aldraðra 125/1999 og lögum um málefni fatlaðra 59/1992.
Heimaþjónusta er veitt á um 140 heimilum í Árborg. Langflestir notendur heimaþjónustu eru aldraðir en einnig er þjónusta fyrir fatlaða, öryrkja og þá sem búa við tímabundin veikindi eða félagslega erfiðleika. Segja má að félagslega heimaþjónusta byggi á þremur þáttum;
-algeng heimilisverk (vikulega eða hálfsmánaðarlega),
-félagsleg samvera (spjallað, farið í gönguferðir o.s.frv.),
-yfirseta,
-innlit.
Náið samstarf er á milli heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu.
Þjónustumiðstöð aldraðra í Grænumörk á Selfossi
Sólarhringsþjónusta er starfrækt í Grænumörk 1,3 og 5. Markmið þeirrar þjónustu er að tryggja frekara öryggi þeirra sem þar búa.
Dagdvöl aldraðra í Grænumörk 5 Sjá bækling
13. grein.
“Dagvist aldraðra sem er stuðningsúrræði við þá sem að staðaldri þurfa eftirlit og umsjá til að geta búið áfram heima. Í dagvist aldraðra skal veitt hjúkrunarþjónusta og vera aðstaða til þjálfunar og læknisþjónustu. Boðið skal upp á flutningsþjónustu að og frá heimili einstaklingsins, mat á heilsufari, þjálfun, tómstundaiðju, félagslegan stuðning, fræðslu, ráðgjöf og aðstoð við athafnir daglegs lífs”. (Lög um málefni aldraðra 125/1999)
Dagdvöl fyrir aldraða er í Grænumörk 5. Leyfi er frá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu fyrir 11 einstaklinga í einu. Að meðaltali koma þangað um 17 einstaklingar á viku.
Vinaminni, dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilunarsjúkdóm
Í Vinaminni er pláss er fyrir 10 einstaklinga og geta þeir verið í einn til fimm daga í viku.
Dagdvöl sem þessi er mikilvæg til þess að virkja þann sem er með heilabilun, örva og hvetja til alls þess sem hann ræður við. Efla sjálfstraust og draga úr vanlíðan og vanmætti. En dagdvölin er ekki síður mikilvæg til að geta létt undir með ástvinum og aðstandendum og veita þeim ráðgjöf og stuðning til að takast á við þau vandamál sem upp kunna að koma.
Hlutverk starfsmannanna er að þjálfa, styðja og styrkja vitsmunalega og líkamlega hæfni einstaklingsins svo að hann geti viðhaldið sjálfstæði sínu eins lengi og kostur.
Mottó okkar er að öllum líði vel og hlakki til að koma til okkar á morgnana. Við munum leggja okkur fram um að skapa rólegt og notalegt andrúmsloft í Vinaminni og hafa hlýju og umhyggju að leiðarljósi. Hinn siðfræðilegi grunnur sem við byggjum á er að allar manneskjur eru jafn mikilvægar burtséð frá sjúkdómnum, aldri, menningarlegum uppruna, kyni og kynhegðun. Við munum leggja mikla áherslu á að hafa þjónustuna eins einstaklings miðaða og nokkur kostur er. Við munum því taka hvern dag fyrir sig, og láta dagsformið stjórna því hvað við tökum okkur fyrir hendur. Í gegnum söng, tónlist, teikningar, málun, spil, matartilbúning, samtöl og gönguferðir svo eitthvað sé nefnt reynum við að koma til móts við þá einstaklinga sem hjá okkur verða.
Í okkar huga eru aðstandendur ekki síður mikilvægir og lögð verður áhersla á samvinnu, samráð og reglulega upplýsinga gjöf til þeirra.
Auk forstöðumanns hafa verið ráðnir 4 starfsmenn. Sjúkraliði með 10 ára reynslu í starfi með öldruðum auk framhaldsnáms í umönnun aldraðra í 100 % starf, félagsliði verður í hlutastarfi, sem og tvær ófaglærðar starfskonur. Allir hafa starfsmennirnir mikla þekkingu og langa reynslu, persónulega eða starfstengda í umönnun og umgengni við einstaklinga með heilabilunarsjúkdóma.
Starfsmennirnir munum þróa starfsemina í sameiningu og njóta ráðgjafar og handleiðslu Hönnu Láru Steinsson framkvæmdarstjóra Bjarmalundar sem er ráðgjafastofa um öldrun og alzheimer, einnig verður leitað til annarra sérfræðinga á þessu sviði.
Markmið starfsmannanna í dagdvölinni er að kynnast hverjum einstaklingi og sögu hans eins vel og unnt er. Gerð verður Lífsbók fyrir hvern og einn, þannig getum við lært að þekkja einstaklinginn eins og hann var áður en sjúkdómurinn tók völdin og það mun hjálpa okkur í því hvernig við tjáum okkur og hvernig við getum túlkað það sem einstaklingurinn með heilabilun getur ekki lengur tjáð eins og hann gat áður. Virðing fyrir einstaklingnum er alltaf mikilvæg ekki síst þegar skapa á langvarandi tengsl, en heilabilunarsjúkdómar vara oft í mörg ár.
Heimsending matur
Öryrkjar og aldraðir eiga þess kost að fá heimsendan mat, eina máltíð á dag. Panta þarf matinn hjá deildarstjóra félagslegrar heimaþjónustu sem er staðsettur í Grænumörk 5, sími 482 - 3462.
Félags- og tómstundastarf aldraðra
Í Árborg hefur félagsstarf verið í höndum Félags eldri borgara með stuðningi frá sveitarfélaginu samkvæmt sérstökum þjónustusamningi. Félagið gefur reglulega út dagskrá um félagsstarfið auk auglýsinga í blöðum . Mest af starfinu fer fram í Grænumörk 5 og er félagið með aðsetur þar. Einnig er stundað félagsstarf á Eyrarbakka og Stokkseyri.
Akstur fyrir eldri borgara í Árborg
Allir íbúar sveitarfélagsins sem náð hafa 67 ára aldri eiga rétt á akstursþjónustu samkvæmt samningi milli Bifreiðastöðvar Árborgar og Sveitarfélagsins Árborgar. Akstursþjónustan er bundin við ferðir vegna læknisþjónustu, sjúkraþjálfunar eða annarrar heilbrigðiþjónustu sem viðkomandi þarf að sækja innan sveitarfélagsins. Einnig nær þjónustan til ferða til að sækja félagsstarf aldraðra innan marka sveitarfélagsins.
Notendur þurfa að nálgast notendakort sem eru til afgreiðslu í Ráðhúsi Árborgar.
Vistunarmat
Til að geta sótt um varanlega vistun á öldrunarstofnun þarf að liggja fyrir vistunarmat, en það gildir sem umsókn fyrir viðkomandi á þeim stofnunum sem hann hyggst sækja um á. Engan má vista á stofnun til langdvalar án þess að fyrir liggi vistunarmat.
Vistunarmat er faglegt einstaklingsbundið mat á þörf hins aldraða fyrir vistun á stofnun. Metnar eru félagslegar aðstæður, heilsufar og andlegt ástand auk þess sem metin er færni í athöfnum daglegs lífs.
Mat á vistunarþörf fyrir hjúkrunarrými er í höndum Vistunarmatsnefndar Suðurlands og er staðsett á Heilbrigðisstofnun Suðurland við Árveg. Sé verið að óska eftir mat á þörf fyrir dvalarrými þurfa viðkomandi umsækjendur að snúa sér til félagsþjónustu í sínu sveitarfélagi annað hvort til verkefnisstjóra félagslegra úrræða í Ráðhúsi Árborgar að Austurvegi 2 eða yfirmanns félagslegrar heimaþjónustu í Grænumörk 5.
Félagsleg liðveisla
Unnið er skv. lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992. Sveitarfélög skulu eftir föngum gefa fötluðum kost á liðveislu. Með liðveislu er átt við persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, t.d. aðstoð við að njóta menningar- og félagslífs. Umsókn um liðveislu kemur frá hinum fatlaða sjálfum, aðstandendum eða svæðisskrifstofu Suðurlands.
Ferðaþjónusta fatlaðra
Sbr. lög um málefni fatlaðra nr. 59/1992, er ferðaþjónusta fatlaða fyrir þá íbúa sem ekki geta notað almenningsvagna og hafa ekki aðgang að eigin farartæki til að geta stundað atvinnu, hæfingu, skóla eða farið til læknis. Sérútbúnir bílar eru notaðir í ferðaþjónustunni til að geta ekið fólki sem notar hjólastóla.










Sjá nánar