Búseta
Búsetuþjónusta SMFS er miðuð út frá þörfum og óskum hvers og eins notanda. Lögð er áhersla á að notendur þjónustu SMFS geti búið á þann hátt sem þeir sjálfir kjósa og þar sem þeir kjósa. Til þess að þetta sé mögulegt er lögð rík áhersla á öflugt samstarf við sveitarfélög, félagasamtök, stofnanir og einkaaðila til að byggja upp möguleika fatlaðra til sjálfstæðrar búsetu í því byggðarlagi þar sem hver og einn óskar eftir að búa.
Mikilvægt er að þeim einstaklingum sem nota þjónustuna séu sköpuð skilyrði til þess að hafa áhrif á eigið líf. Einnig að þeir upplifi öryggi á eigin heimili en geti jafnframt notið einkalífs.
Lögð er áhersla á að búsetuþjónustan sé sveigjanleg og geti aðlagast breyttum þörfum einstaklinganna sem nota þjónustuna sem og þeim breytingum sem eru á hugmyndafræði í þjónustu við fatlaða og í samfélaginu almennt.
Sími: 480-6922
Netfang: katrinb(hjá)arborg.is
Sími: 480-6923
Netfang: jonavigdis(hjá)arborg.is
Sími: 483-4030
Netfang: birkimork(hjá)hveragerdi.is
Sími: 483-3844
GSM: 893-3816 / 864-5807
Netfang: selvogur(hjá)olfus.is








