Félagsleg liðveisla

Forsíða » Þjónusta » Málefni fatlaðra » Félagsleg liðveisla
Félagsleg liðveisla er verkefni sem verið hefur í höndum sveitarfélaga. Fram kemur í X. Kafla 24 grein laga um málefni fatlaðra nr.59/1992  að “Sveitarfélög skulu eftir föngum gefa fötluðum kost á liðveislu.  Með liðveislu er átt við persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, t.d. aðstoð til að njóta menningar og félagslífs.”
Ljóst er að félagsleg liðveisla eykur möguleika þeirra sem glíma við fötlun til að taka þátt í félagsstarfi af ýmsum toga. Teljast verður nauðsynlegt að sveitarfélög bjóði upp á liðveislu til að jafna stöðu fatlaðra og ófatlaðra. Enda er óhætt að segja að ýmsu má kosta til til að sporna við félagslegri einangrun. Fólk með fötlun velur sér sjaldnast að vera eitt, það verður eitt vegna fötlunar sinnar og þar kemur félagsleg liðveisla inn í, til að rjúfa þá einangrun.
 
Misjafnt er hvort sveitarfélög á Suðurlandi hafa mótað sér reglur fyrir félagslega liðveislu. Sum hafa gert það og má þá finna reglurnar með því að nota leitarmöguleikann á heimasíðum sveitarfélaganna eða finna þær undir reglum sveitarfélagsins (oft undir merkjum ”stjórnsýsla” eða ”þjónusta”). Fjalla reglurnar að jafnaði um hvernig sækja skal um þjónustuna, forsendur viðkomandi einstaklings til að fá félagslega liðveislu, fjölda þjónustutíma, kostnaður við þjónustu og fleira í þeim dúr. Viljum við benda á að forstöðumenn eininga þekkja reglurnar í því sveitarfélagi sem starfseiningin er starfandi í.
 
Gerður er greinarmunur á félagslegri liðveislu og frekari liðveislu en frekari liðveisla er á höndum Svæðisskrifstofa. Með frekari liðveislu er átt við margháttaða aðstoð við ýmsar athafnir daglegs lífs sem nauðsynleg er til að koma í veg fyrir dvöl á stofnun (25.grein laga um málefni fatlaðra). 
 
Góðar stundir,
Tekið saman af Ósk Unnarsdóttur þroskaþjálfa.
 
Heimildir:
Heimasíður sveitarfélaga til að bera saman lög.