Frekari liðveisla
Frekari liðveisla er viðbótarþjónusta við lögbundna almenna þjónustu sem fötluðum stendur til boða, eins og heimaþjónustu, heimahjúkrun, kennslu og þjálfun og kemur einungis til álita ef sú þjónusta telst ekki nægjanleg.
Frekari liðveisla er margháttuð persónuleg aðstoð í daglegu lífi sniðin að þörfum hvers og eins.
Frekari liðveisla er þjónusta fyrir þá sem búa sjálfstætt í íbúð, hafi þeir fullnýtt rétt sinn til heimaþjónustu sveitarfélags skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Einnig að veitt sé heimahjúkrun þar sem það á við. Frekari liðveisla er fyrst og fremst veitt á heimili þjónustunotandans.
Frekari upplýsingar veita:
Brynhildur Jónsdóttir forstöðuþroskaþjálfi brynhildurj(hjá)arborg.is
Elsa Birna Björnsdóttir elsa(hjá)arborg.is
Inga Dóra Sverrisdóttir ingadora(hjá)arborg.is
Halldór Grétarsson halldor(hjá)arborg.is








